Listasafn Islands

Almenn listaverkaeign

An upcoming exhibition

Almenn listaverkaeign Listasafnsins hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og telur nú tæplega 3400 listaverk. Í safninu er að finna verk eftir fjölda íslenskra listamanna, eldri sem yngri, og einnig nokkuð af verkum erlendra listamanna, flest verk frá 20. öld. Verk úr safninu eru send út til stofnana Reykjavíkurborgar eftir ákveðnu útlánakerfi. Þannig fá borgarbúar og gestir notið listaverka úr safni borgarinnar m.a. í skólum, félagsmiðstöðvum, á heilsugæslustöðvum, í Ráðhúsi Reykjavíkur, á skrifstofum borgarstofnanna Reykjavíkur o.s.frv.

Listasafn Reykjavíkur hefur ekki aðstöðu til að hafa þetta mikla safn til sýnis að staðaldri í byggingum sínum, en sýnir reglulega ákveðið úrval þessara verka, á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi.

Umsjón með listaverkaeign Reykjavíkurborgar hefur safnadeild Listasafns Reykjavíkur.

 



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.23.2012