Markmið og leiðarljós
Leiðarljós
Að Listasafn Reykjavíkur sé framúrskarandi alþjóðlegur vettvangur myndlistar sem leggur áherslu á markvissa þjónustu við ólíka hópa og eftirsóknarverður viðkomustaður í daglegu lífi fólks.
Markmið
Að val verka í safneign og til sýninga ráðist af listrænu gildi þeirra fyrst og fremst. Að sinna fræðslu, kynningu og útgáfu á þann hátt að nútímalist verði aðgengileg öllum. Að hlúa að rannsóknum og skráningu á listaverkum safnsins á þann hátt að safneignin geti þjónað menningarsögulegu hlutverki sínu til frambúðar. Að hafa gott eftirlit og umsjón með listaverkum á almannafæri í eigu borgarinnar svo þau haldi listrænu gildi sínu. Að sýna helstu stefnur og strauma í list samtímans og með því gera borgarbúar og öðrum gestum safnsins kleift að fylgjast með framsækinni íslenskri og alþjóðlegri myndlist
Prenta