Listasafn Reykjavíkur

Útgáfa

Bækur til sölu í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, Ásmundarsafni og á Kjarvalsstöðum.

MöguleikarMöguleikar
Þessi bók er gefin út í tilefni af yfirlitssýningu á verkum þeirra tíu listamanna sem hafa hlotið styrk úr listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Styrknum var úthlutað í fyrsta sinn við opnun Listahátíðar í Reykjavík árið 1998.Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af gjöf Errós á andvirði íbúðar að Freyjugötu 34 sem Guðmunda móðursystir hans arfleiddi hann að. Hvert ár er listakona valin vegna framlags hennar til myndlistar það árið og henni veittur fjárstyrkur til eflingar listsköpun hennar. Þetta er hugsað sem viðurkenning og uppörvun til frekari stórræða í listinni. Í bókinni eru viðtöl við allar listakonunar ásamt myndum. Texti er á islensku og ensku. Útgáfa Listasafn Reykjavíkur 2009  


LjóslitlífunLjóslitlífun
Einn tilgangur sýningarinnar er að votta brennandi áhuga yngri kynslóðar listamanna á Íslandi á því að mála á tímum þar sem innsetningar, hljóðlist og vídeó virðast allsráðandi. Þó að listamennirnir hafi allir einhvern tímann beitt ýmsum tjáningarmiðlum á sýningum sínum, annaðhvort beint í listaverkum sínum eða í samstarfi við aðra, hvílir áherslan hér á málverkum þeirra. Allir listamennirnir hafa stundað málun sem sjálfstætt sköpunarform og í flestum tilvikum sem helsta listmiðil sinn.
Í bókinni eru mikill fjöldi litmynda ásamt ferilsskrá listamannanna.
Bókin er 112 bls. Texti er á íslensku og ensku. Útgáfa Listasafn Reykjavíkur 2010


Blæbrigði vatnsinsBlæbrigði vatnsins
Í þessu verki sem gefið er út í tilefni sýningarinnar Blæbrigði vatnsins, rekur Aðalsteinn Ingólfsson sögu vatnslitamálunar á Íslandi allt frá 1880 fram til ársins 2009. Alls eiga 60 íslenskir myndlistamenn verk í bókinni. Sá elsti er fæddur 1820 en sá yngsti árið 1972. Bókin veitir því góða sýn yfir þátt vatnslitamálunar í íslenskri myndlist og birtir jafnframt heillandi myndir listamannanna sem margar hverjar hafa ekki fyrr komið fyrir augu almennings en sýna vel sérkenni þeirra.
Bókin er gefin út í samstarfi Bókaútgáfunnar Opnu og Listasafns Reykjavíkur 2010. Hún er 153 bls. Texti er á íslensku.

Erró Mannlýsingar

Erró – Mannlýsingar
Bókin er gefin út í samstarfi Bókaútgáfunnar Opnu og Listasafns Reykjavíkur, í tilefni af 20 ára afmæli listaverkagjafar Errós og fylgir samnefndri sýningu í Listasafni Reykjavíkur. Í þessari bók er dvalist við mannlýsingar Errós sem eru ótrúlega fjölbreyttar. Í portrettmyndum sínum notar hann ótal aðferðir, m.a. koma gjarnan fyrir mynda- og textabrot úr dagbókum og öðrum heimildum enda er listamaðurinn óþreytandi safnari gagna. Mannlýsingar hans eru því iðulega margþættar portrettmyndir, hvort sem hann fæst við einstaklinga eða þemu úr mannkynssögunni eða poppmenningunni. Auk þess að skrifa ítarlegan inngang ritstýrði Danielle Kvaran verkinu og valdi myndefnið. Hún leitaði einnig til margra höfunda, innlendra og erlendra, sem fjalla um einstök verk Errós..
Bókin er 160 bls. í stóru broti. Hún er prýdd aragrúa mynda og öll prentuð í lit Björn Valdimarsson í Næst hannaði verkið og gerði bókarkápu.



Útgáfa 2008 - 2009

Útgáfa 2005 - 2007

Útgáfa 2002 - 2004

Útgáfa 2000 - 2001

Útgáfa 1998 - 1999

Útgáfa 1996 - 1997

Útgáfa 1994 - 1995

Útgáfa 1990 - 1993

Útgáfa 1976 - 1989


Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00