Fyrir leikskóla
Í söfnunum er tekið á móti hópum leikskólabarna frá mánudegi til föstudags á milli klukkan 8 og 15. Leiðsögn um sýningar er skólunum að kostnaðarlausu. Hámarksfjöldi barna í hóp er 25.
Í vetur er fjöldi sýninga sem gaman verður að heimsækja en við viljum sérstaklega benda leikskólakennurum á Ásmundarsafn þar sem verkin eru aðgengileg, safnhúsið sjálft spennandi og gott að eiga fyrstu kynni af listasöfnum í Ásmundarsafni.
Athugið að hægt er að fá allar nánari upplýsingar og bóka leiðsögn hjá fræðsludeild virka daga milli klukkan 8:20 og 16 í síma 590 1200.
Netfang: fraedsludeild@reykjavik
Þar sem oft er erfitt að anna eftirspurn eftir leiðsögn er mikilvægt að bóka tíma fyrir skólahópa með góðum fyrirvara!
Prenta