Liðnar sýningar
Hafnarhús
Erró - Klippimyndir
18. september 2010 - 21. ágúst 2011
Á sýningunni Erró – Klippimyndir gefst almenningi í fyrsta skipti tækifæri til að skoða um það bil 130 klippimyndir sem Erró hóf að gefa Listasafni Reykjavíkur árið 1989. Danielle Kvaran er sýningarstjóri Erró sýningarinnar, en auk þess að setja upp sýningar í Listasafni Reykjavíkur á verkum Errós, hefur hún ritað bækur, sýningarskrár og greinar um listamanninn.
> Lesa meira
Gardar Eide Einarsson – Power has a Fragrance
21. október 2010 – 9. janúar 2011
Gardar Eide Einarsson (1976) er einn nafntogaðasti listamaður sem komið hefur fram á sjónarsviðið hin síðari ár á Norðurlöndum. Hann er af íslensku bergi brotinn en verk hans hafa vakið heimsathygli og skipar hann sér í raðir með eftirtektarverðustu listamönnum samtímans.
> Lesa meira
D18 – Bjarni massi
4. nóvember 2010 – 9. janúar 2011
Listasafn Reykjavíkur vekur athygli á efnilegum myndlistarmönnum með sýningaröð í D-sal, en röðin hlaut menningarverðlaun DV á síðasta ári. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa ekki verið með einkasýningu í stærri söfnum landsins og verk þeirra eru sérstaklega unnin fyrir salinn.
> Lesa meira
Klippimyndasamkeppni Errós
13. nóvember 2010 - 9. janúar 2011
Ótrúlegur fjöldi af klippimyndum bárust í keppnina þar sem þátttakendur sýndu skapandi og frumlegar lausnir á viðfagsefninu og bárust alls yfir 200 tillögur. Það var Listasafn Reykjavíkur sem stóð fyrir keppninni að frumkvæði listamannsins Errós, en markmiðið var að auka skilning, þekkingu og áhuga almennings og nemenda á samklippi (collage) sem listformi.
> Lesa meira
Erró – Samtíningsverk / Þrívíddarsamklipp
20. janúar — 21. ágúst 2011
Sýningin er hugsuð sem framhald af sýningunni Erró–Klippimyndir sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Samtíningsverk, sem eru einskonar þrívíddarsamklipp, birtast fyrst í list Errós í myndaröðinni Mécamasks (Vélgrímur), frá 1959 og í leikmyndinni fyrir Concerto mécanique pour la folie ou La Folle Mécamorphose (Vélkonsert fyrir klikkunina eða hin klikkaða vélmyndbreyting), frá 1962-63 eftir Éric Duvivier.
> Lesa meira
D19 – Hulda Rós Guðnadóttir
20. janúar — 27. febrúar 2011
Sýning Huldu Rósar Guðnadóttur (1973) í D-salnum nefnist Hops Hopsi og samanstendur af tíu rása myndbandsinnsetningu sem hún gerði árið 2010.
> Lesa meira
D20 – Helgi Már Kristinsson
10. mars — 10. apríl 2011
Keðjuverkun er yfirskriftin á sýningu Helga Más Kristinssonar (1973) en þar verða sýnd málverk og skúlptúrar sem hann hefur unnið að síðastliðna mánuði.
> Lesa meira
Án áfangastaðar
20. janúar — 10. apríl 2011
Hinn ört vaxandi straumur innlendra og erlendra ferðamanna um Ísland er viðfangsefni sýningarinnar, en þar er áleitnum spurningum er snerta ferðamennsku velt upp. Auk sýningarinnar verður boðað til umfangsmikillar ráðstefnu sem tileinkuð er náttúrutengdri ferðamennsku.
> Lesa meira
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands 2011
23. apríl - 8. maí 2011
Útskriftarárgangur myndlistar- og hönnunardeilda Listaháskóla Íslands munu sýna verk sín.
> Lesa meira
Tomi Ungerer - Teikningar og veggspjöld
21. maí — 24. júlí 2011
Tomi Ungerer er margverðlaunaður teiknari og rithöfundur sem hefur gefið út yfir 140 bækur, allt frá eftirsóttum barnabókum til umdeildra fullorðinsbókmennta.
> Lesa meira
Sjónarmið - Á mótum myndlistar og heimspeki
21. maí — 4. september 2011
Viðfangsefni sýningarinnar eru listaverk sem afhjúpa bresti í viðteknum skilgreiningum á list og hlutverki hennar, verk sem kveikja heimspekilega umræðu og túlka má sem innlegg í hana.
> Lesa meira
Erró – Samtíningsverk / Þrívíddarsamklipp
28. júlí - 21. ágúst 2011
Sýningin er hugsuð sem framhald af sýningunni Erró–Klippimyndir sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Samtíningsverk, sem eru einskonar þrívíddarsamklipp, birtast fyrst í list Errós í myndaröðinni Mécamasks (Vélgrímur), frá 1959 og í leikmyndinni fyrir Concerto mécanique pour la folie ou La Folle Mécamorphose (Vélkonsert fyrir klikkunina eða hin klikkaða vélmyndbreyting), frá 1962-63 eftir Éric Duvivier.
> Lesa meira
Erró – Teikningar
3. september 2011 – 19. ágúst 2012
Teikningin er sú grein Errós sem hann er hvað minnst þekktur fyrir, en á sýningunni eru sýnd um 200 slík verk. Verkin vann listamaðurinn frá árinu 1944 til vorra daga og beitti fjölbreyttri tækni og aðferðum við gerð þeirra.
> Lesa meira
Attersee – Dansleikur í Skyrtudal
3. september – 6. nóvember 2011
Nýverið hlaut Listasafni Reykjavíkur ómetanleg gjöf grafíkverka frá austurríska listamanninum Christian Ludwig Attersee og galleríista hans og samlanda Ernst Hilger. Gjöfin samanstendur af 63 verkum sem unnin eru á árunum 1970 – 2010 og er hluti þeirra á sýningunni.
> Lesa meira
Hraðari og hægari línur - Úr einkasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
22. september 2011 – 1. janúar 2012
Frá örófi alda hefur maðurinn dregið línu. Lína er mörkuð í sand, á húð, rist í eða dregin á mjúkan hellisvegg. Línan er mörkuð með fingri, reyk, jurtum, dýrahárum, kolum, grafít, bleki og eggjárnum, af mismunandi ástæðum og menningarlegri afstöðu til merkingar athafnarinnar og teikningarinnar sjálfrar.
> Lesa meira
D21 Hildigunnur Birgisdóttir
22. september – 20. nóvember 2011
Tilraunakennd verk Hildigunnar Birgisdóttur byggjast gjarnan á leikjum. Leikirnir á reglum og reglur eru kerfi. Kerfi listamannsins eiga rætur sínar að rekja til eðlisfræðilegra fyrirbæra og heimspekilegra vangaveltna um hringrásir og heimskerfi.
> Lesa meira
D22 Björk Viggósdóttir - Flugdrekar
24. nóvember 2011 – 8. janúar 2012
Björk Viggósdóttir útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og hefur lagt áherslu á gerð myndbandsverka og innsetninga. Björk leitast við að kalla fram óvænt viðbrögð áhorfenda með því að yfirfæra á persónulegan máta skynjanir á borð við tilfinningar, hljóð, sjón og liti.
> Lesa meira
Ósk Vilhjálmsdóttir
22. september 2011 – 1. janúar 2012
Á síðustu árum hefur Listasafn Reykjavíkur leitast við að tengjast almenningsrými borgarinnar og efna til þjóðfélagslegrar umræðu innan veggja safnsins. Ósk Vilhjálmsdóttir er sjötti listamaðurinn sem gerir sérstaka innsetningu í A-sal Hafnarhússins með þetta að leiðarljósi.
> Lesa meira
Teiknisamkeppni
12. nóvember 2011 – 1. janúar 2012
Listasafn Reykjavíkur efnir til tvíþættrar teiknisamkeppni í tengslum við sýninguna Erró – Teikningar.
> Lesa meira
Kjarvalsstaðir
Kjarval Lykilverk
27. janúar – 31. desember
Listasafn Reykjavíkur á gríðarstóra safneign af verkum Kjarvals sem jafnan er til sýnis á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni í austursal Kjarvalsstaða eru nú sýnd lykilverk Kjarvals í eigu Listasafnsins.
> Lesa meira
Ný aðföng 2006–2010
20. nóvember 2010 – 23. janúar 2011
Hvorki meira né minna en 711 listaverk hafa bæst við safneign Listasafns Reykjavíkur á árunum 2006 - 2010. Þetta eru 495 listaverkagjafir, 35 dánargjafir og 270 verk sem safnið hefur sjálft fest kaup á.
> Lesa meira
Af hverju er listaverkum safnað?
20. nóvember 2010 – 23. janúar 2011
Af hverju er listaverkum safnað? Opin og fræðandi listsmiðja fyrir fjölskylduna í norðursal sem sett er upp í tengslum við sýninguna Ný aðföng 2005–2010.
> Lesa meira
Sýning sýninganna, Ísland í Feneyjum í 50 ár
5. febrúar - 25. apríl 2011
La Biennale di Venezia eða Feneyjatvíæringurinn er stundum nefndur Sýning sýninganna, enda elstur allra tvíæringa og einn af heimsins merkustu myndlistarviðburðum. Fyrsta sýningin var skipulögð árið 1895 og hefur tvíæringurinn verið haldinn reglulega síðan.
> Lesa meira
Feneyjar hér og Feneyjar þar
5. febrúar - 25. apríl 2011
Opin og fræðandi listsmiðja fyrir fjölskylduna sem sett er upp í tengslum við Sýningu sýninganna: Ísland í Feneyjum í 50 ár og stendur yfir á þessum tíma.
> Lesa meira
Jór! Hestar í íslenskri myndlist
7. maí - 21. ágúst 2011
Hesturinn hefur verið viðfangsefni íslenskra myndlistamanna frá upphafi, annað hvort sem aðal viðfangsefni eða í aukahlutverki í landlagsmálverkum og mannamyndum.
> Lesa meira
Smiðja - Litbrigði hestsins
7. maí — 21. ágúst 2011
Hvað er litföróttur, vindóttur,moldóttur, móálóttur, bleikálóttur, fífilbleikur, leirljós, jarpur, rauður, brúnn, grár, skjóttur-, slettuskjótturog hjálmskjóttur litur?
> Lesa meira
Ný list verður til
10. september – 6. nóvember 2011
Hvað gerist þegar eitt skeið í listum víkur fyrir öðru? Verða skörp skil þar sem einn straumur hverfur inn í annan eða myndast iður og straumköst? Um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar var eins og allar gáttir opnuðust. Þá urðu afdrifarík kynslóðaskipti í íslenskri myndlist.
> Lesa meira
Sérvizka Kjarvals – Sögusmiðja
10. september – 30. desember 2011
Í sögusmiðjunni Sérvizka Kjarvals er fjallað um uppátæki og hversdagslegar athafnir Jóhannesar Kjarvals sem gjörninga. Athafnir sem listamaðurinn er þekktur og margrómaður fyrir.
> Lesa meira
Daði Guðbjörnsson - Á slóðum Ódysseifs
19. nóvember – 30. desember 2011
Sýning málarans Daða Guðbjörnssonar er innblásin af hinni löngu og viðburðarríku ferð Ódysseifs. Ekki er um eiginlega myndgerð ferðalagsins að ræða heldur lítur listamaðurinn á Ódysseifskviðu sem dæmisögu um andlega leit sálarinnar þar sem málverkin eru líkami þeirrar sálar.
> Lesa meira
Kjarval snertir mig: ungt fólk kynnist Kjarval.
19. nóvember 2011 – 15. janúar 2012
Hópur framhaldsskólanema fær tækifæri til að kynnast verkum Kjarvals og starfi sýningastjóra með þátttöku í nýju verkefni á vegum safnsins.
> Lesa meira
Ásmundarsafn
„Ég kýs blómlegar konur . . .“ Konan sem tákn í list Ásmundar Sveinssonar
1. maí 2010 - 17. apríl 2011
Stór hluti af verkum Ásmundar Sveinssonar fjalla um konur; allt frá ástríkum mæðrum til stritandi vinnukvenna og frá viðkvæmum yngismeyjum til hamslausra tröllkvenna.
> Lesa meira
Hugsað í formum
18. apríl 2012
Í píramídanum er endurgerð af vinnustofu Ásmundar þar sem ljósi er varpað á vinnuaðstöðu hans í Sigtúninu. Einnig hefur verið sett upp lesstofa þar sem hægt er að fræðast um líf og list Ásmundar í máli og myndum.
> Lesa meira
Svefnljós – Ráðhildur Ingadóttir
20. maí 2010 — 17. apríl 2011
Svefnljós er heiti á innsetningu Ráðhildar Ingadóttur, sem sett er saman úr hvolfi Ásmundarsafns, hljóði rýmisins, tölvu, handspegli, ljósvarpa og skugga.
> Lesa meira
Frá hugmynd að höggmynd - Teikningar Ásmundar Sveinssonar
30. apríl 2011 - 22. apríl 2012
Í sýningunni Frá hugmynd að höggmynd – Teikningar Ásmundar Sveinssonar verður veitt innsýn í ríkulegt safn teikninga sem myndhöggvarann Ásmundur Sveinsson lét eftir sig.
> Lesa meira