Fyrir háskóla
Í öllum söfnunum er tekið á móti háskólanemum og þeim veitt leiðsögn. Við bendum kennurum á að kynna sér dagskrá safnanna og bóka tíma með góðum fyrirvara. Á vegum fræðsludeildar er sérstaklega tekið á móti kennaranemum og nemum í uppeldis- og kennslufræði og þeim kynnt hvernig þeir geta nýtt safnið þegar þeir hefja störf.
Athugið að hægt er að fá allar nánari upplýsingar og bóka leiðsögn hjá fræðsludeild virka daga milli klukkan 8:20 og 16. Netfang: fraedsludeild@reykjavik.is sími 590 1200.
Í öllum söfnunum; Kjarvalsstöðum, Ásmundarsafni og Hafnarhúsi, er tekið á móti hópum nemenda frá mánudegi til föstudags á milli kl. 8 og 15. Heimsókn í söfnin er skólunum að kostnaðarlausu.
Þar sem oft er erfitt að anna eftirspurn eftir leiðsögn er mikilvægt að bóka tíma fyrir skólahópa með góðum fyrirvara!
Prenta