Útgáfa 1976 - 1989
Erró - catalogo generalo
Útgefandi: Pre-art 1976.
Í bókinni eru myndir af verkum eftir Erró frá tímabilinu 1944-1974. Myndirnar eru í svart-hvítu. Í bókinni má finna æviágrip listamannsins og ferilskrá frá þessum árum á ensku, ítölsku og frönsku.
230 bls. Útgáfuár: 1976

Erró Rými/ Tími
Höfundur: Gunnar B. Kvaran
Þetta rit er hluti af ritgerð um formgreiningu á verkum eftir Erró frá árunum 1963-1980. Ritgerðin birtist í Skírni árið 1985. 37 bls. Útgáfuár: 1985. Uppseld
Jóhannes S. Kjarval - Aldarminning
Í bókinni er telft saman fjórum stuttum ritgerðum um ævi Kjarvals og verk hans. Matthías Johannessen skrifar um kynni sín af listamanninum, Guðbjörg Kristjánsdóttir um málverk hans, Árni Sigurjónsson um rit Kjarvals og Bera Nordal um teikningarnar. Aðfararorð eru eftir Davíð Oddsson. Myndir í bókinni eru í lit og hefur hún að geyma ferilsskrá Kjarvals sem og skrá yfir helstu sýningar og rit eftir hann og um hann. 84. bls. Útgáfuár: 1985. Uppseld
Erró 1974-1986 - catalogue général
Útgefandi: Fernand Hazan. Aðfararorð á ensku og frönsku.
Þessi bók hefur að geyma myndir af verkum eftir Erró frá tímabilinu 1974-1986. Flestar myndanna eru í svart-hvítu. Aðfararorð skrifar Jean-Jacques Lebel. Í bókinni er æviágrip listamannsins og ferilskrá á frönsku. 240 bls. Útgáfuár: 1986
Maðurinn í forgrunni
Sýningin Maðurinn í forgrunni var haldin í tilefni Listahátíðar árið 1988 á Kjarvalsstöðum. Sýningunni var ætlað að bregða ljósi á manninn í íslenskri myndlist undanfarna tvo áratugi og sýna hvernig íslenskir myndlistarmenn hafa málað og mótað, manninn í mismunandi formgerðum og stíl. Texti er einungis á íslensku. 112 bls. Útgáfuár: 1988. Uppseld.
Erró - Hringferðin og línan
Þetta rit var gefið út í tilefni sýningar á verkum eftir Erró á Kjarvalsstöðum 1989. Aðfararorð ritar Davíð Oddson en greinar eru eftir Gunnar B. Kvaran. Í ritinu eru myndir í svart hvítu af verkum á sýningunni, hún hefur einnig að geyma skrá yfir sýningarferil listamannsins. 72 bls. Útgáfuár: 1989. Uppseld
Kristján Guðmundsson Teikningar/Drawings 1972-1988
Árið 1989 bauð Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar Kristjáni Guðmundssyni að halda sýningu á verkum sínum að Kjarvalsstöðum. Kristján sýndi þar teikningar gerðar á árunum 1972-1988. Það prýða enn fremur ljósmyndir af öllum teikningum sýningarinnar. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 62 bls. Útgáfuár:1989. Uppseld
Súm 1965-1972
Listasafn Reykjavíkur efndi til yfirlitssýningar á verkum SÚM listamanna 1965-1972, árið 1989. Af því tilefni var gefin út vegleg bók sem inniheldur viðtöl við listamennina og greinar um þá. Allar ljósmyndir eru í svart hvítu. Aðfaraorð ritar Gunnar B. Kvaran. Aftast er ferilskrá þeirra listamanna sem áttu verk á sýningunni. Texti er á íslensku en úrdráttur á ensku. 174 bls. Útgáfuár: 1989. Uppseld
Prenta