Listasafn Islands

Útgáfa 1990 - 1993

An upcoming exhibition

Guðmunda andrésdóttirGuðmunda Andrésdóttir
Í þessu riti sem kom út í tilefni sýningar Guðmundu Andrésdóttur á Kjarvalsstöðum 1990 ræðir Gunnar B. Kvaran við listakonuna um 40 ára starfsferil hennar sem listmálara. Í ritinu er að finna ferilskrá Guðmundu. Flestar myndir eru í svart hvítu. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 79 bls. Útgáfuár: 1990. Uppseld




Íslensk höggmyndalistÍslensk höggmyndalist 1900-1950
Á Listahátíð 1990 var efnt til sýningar á íslenskri höggmyndalist frá 1900-1950 á Kjarvalsstöðum. Er þar um að ræða upphaf íslenskrar höggmyndalistar sem kenndur hefur verið við módernismann. Í þessari sýningarskrá er texti um íslenska myndhöggvara og ljósmyndir af verkum þeirra. Flestar myndir eru í svarthvítu. Texti á íslensku. 110 bls. Útgáfuár: 1990.
Uppseld



Yoko onoYoko Ono
Árið 1990 hélt japanska listakonan Yoko Ono sýningu á Kjarvalsstöðum. Í þessari sýningarskrá eru ljóð og svarthvítar ljósmyndir sem listakonan setti sjálf saman. Í skránni er grein eftir Inu Blom. Aftast er listi yfir þau verk sem voru á sýningunni. Allur texti á ensku (grein eftir Inu Blom þýdd á íslensku). 40 bls. Útgáfuár: 1990. Uppseld




Bókmenntirnar í lífi ásmundarBókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar
Þetta vandaða rit fjallar um bókmenntalegar tilvísanir í verkum Ásmundar Sveinssonar en bókmenntir voru fyrirferðamiklar í list hans. Texta ritar Gunnar B. Kvaran. Myndir eru í lit. Allur texti bæði á íslensku og ensku.75 bls. Útgáfuár: 1991. Uppseld




ÍvarÍvar Valgarðsson
Innsetningar Ívars Valgarðssonar sem hann sýndi að Kjarvalsstöðum árið 1991 áttu það allar sameiginlegt að vera úr efniviði sem listamaðurinn hafði einungis valið og raðað upp en ekki unnið að öðru leyti. Í smáriti sem gefið var út í tilefni sýningarinnar skrifar Ívar hugleiðingu um viðhorf sitt til listarinnar og Gunnar B. Kvaran ritar stutta grein um verk hans. Ritið hefur enn fremur að geyma litljósmyndir af innsetningum Ívars sem og ferilsskrá listamannains. Allur texti er á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1991



HrólfurHrólfur Sigurðsson
Árið 1992 var haldin yfirlitssýning á verkum Hrólfs Sigurðssonar. Í tilefni hennar var gefin út bók um listamanninn og verk hans. Hrólfur hefur ekki verið áberandi í myndlistarheiminum en hann lauk myndlistarnámi frá Listaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1950. Inngang bókarinnar ritar Gunnar B. Kvaran. Myndir eru ýmist í lit eða svart hvítu. Aftast er að finna ferilskrá listamannsins. 45 bls. Útgáfuár: 1992. Uppseld



JeanJean Jaques Lebel
Franski listamaðurinn Jean Jaques Lebel hélt sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum árið 1992. Sýningarskráin sem gefin var út með sýningunni geymir myndir í lit og svart hvítu af verkum listamannsins og greinar eftir hann sjálfan, Felix Guattari, Victor Brauner og André Pieyre de Mandiargues. Í skránni er að finna ferilsskrá listamannsins og verkalista sýningarinnar. Texti er einungis á íslensku. 32 bls. Útgáfuár: 1992



GispGisp !
Þessi bók kom út í tilefni sýningar Gisp! á Kjarvalsstöðum árið 1992. Hún er um leið fimmta tölublað tímaritsins Gisp! og sýningarskrá myndasögusýningarinnar. Í bland við myndasögur eru í bókinni greinar um myndasögur og þá frönsku myndasöguhöfunda sem tóku þátt í sýningunni. Allur texti á íslensku. 111 bls. Útgáfuár: 1992. Uppseld







NáttúraNáttúra/Náttúra
Þessi bók kom út í tilefni sýningar sem sett var upp á Listasafni Akureyrar árið 1994. Á sýningunni voru kynnt verk eftir Jóhannes S. Kjarval og Ásmund Sveinsson. Í bókinni eru greinar um Náttúrusýn Kjarvals, eftir Krstínu G. Guðnadóttur og Náttúruna í list Ásmundar Sveinssonar eftir Gunnar B. Kvaran. Bókin inniheldur litmyndir af verkum listamannanna. Aftast er ferilskrá. Allur texti á íslensku. 88 bls.  Útgáfuár: 1992






RodinRodin
Þessi bók var þýdd úr frönsku og gefin út í tilefni sýningar á höggmyndum Rodin á Kjarvalsstöðum árið 1993. Bókina prýða fjöldi mynda af verkum listamannsins. Allur texti á íslensku. Myndir í svart-hvítu. 78 bls. Útgáfuár: 1993.  Uppseld








Daði guðbjörnssonDaði Guðbjörnsson
Í tilefni sýningar á málverkum Daða Guðbjörnssonar að Kjarvalsstöðum 1993 var gefin út bók samnefnd honum. Grein um listamanninn og verk hans ritar Gunnar J. Árnason. Í bókinni eru vandaðar litprentaðar myndir af verkum sýningarinnar. Aftast er ævi- og ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 46 bls. Útgáfuár: 1993. Uppseld 




Íslenskt landslagÍslenskt landslag 1900-1945 Icelandic landscape painting 1900-1945
Í þessarri bók má finna vandaðar litprentaðar myndir af verkum frumkvöðla íslenskrar myndlistar, allt frá upphafi íslenska landslagsmálverksins. Myndirnar prýddu samnefnda sýningu sem haldin var á Kjarvalsstöðum í Mars-Apríl 1993. Grein um íslenska landslagsmálverkið skrifar Kristín G. Guðnadóttir en einnig er að finna í bókinni stutt æviágrip listamannanna. Bókin er bæði á íslensku og ensku. 112 bls. Útgáfuár: 1993.  Uppseld



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.33.2012