Listasafn Reykjavíkur

Útgáfa 1994 - 1995

Erró gjöfinErró - gjöfin 1994
Þessi bók var gefin út í tilefni sýningar á verkum sem Erró gaf Reykjavíkurborg árið 1989. Aðfararorð ritar Gunnar B. Kvaran. Í bókinni eru litmyndir af þeim verkum sem voru á sýningunni auk þess sem hún hefur að geyma brot úr viðtölum sem tekin voru við Erró á árunum 1969-1988. 50 bls. Útgáfuár: 1994.  Uppseld





Erró - marc augeErró - Goðsagna málarinn
Útgefandi: Le Lit du Vent. Höfundur: Marc Augé
Upplifun höfundarins á verkum Erró er megin efni þessarar bókar. Í henni er ítarleg rita- og sýningaskrá listamannsins auk þess sem æviferill hans er rakinn. Bókin var gefin út á frönsku, ensku og íslensku og hana prýða fjöldi litmynda. 290 bls. Útgáfuár: 1994





FinnbogiFinnbogi Pétursson
Bókin var gefin út í tilefni sýningar listamannsins á Kjarvalsstöðum. Hugleiðingar um listamanninn og verk hans ritar Halldór Björn Runólfsson. Aftast er ferilskrá Finnboga. Allar myndir eru í lit. Texti er bæði á íslensku og ensku.
32 bls. Útgáfuár: 1994





HuldaHulda Hákon
Eldur og blóm voru viðfangsefni listakonunnar Huldu Hákon á sýningu sem haldin var á verkum hennar að Kjarvalsstöðum árið 1994. Í bók sem gefin var út með sýningunni skrifar Dr. Michael Glasmeier stutta grein um eldinn og blómin í list Huldu. Nokkrar myndir af verkum hennar prýða bókina og eru þær allar í lit. Ferilskrá listakonunnar er einnig að finna í bókinni. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1994





KjarvalskverJóhannes S. Kjarval - Kjarvalskver
Bókin er safn viðtalsþátta sem Matthías Johannessen átti við Kjarval á 6. og 7. áratugnum og birtust í Morgunblaðinu og síðar í bókinni Kjarvalskveri árið 1974. Tuttugu árum síðar, eða 1994, var bókin endurútgefin með viðaukum og endurskoðuðum texta. Í bókinni birtist persóna listamannsins og hugmyndaheimur á nálægan hátt, andblær Kjarvals, tilsvör hans og tiktúrur verða lesandanum lifandi. Aðfararorð ritar Gunnar B. Kvaran.  112. bls. Útgáfuár: 1994




KristinnKristinn G. Harðarson
Með sýningu að Kjarvalsstöðum árið 1994 voru kynnt verk Kristins G Harðarsonar myndlistarmanns sem hefur í gegnum tíðina fengist við mörg ólík listform. Í tilefni sýningarinnar var gefin út rit sem hefur að geyma yfirlit yfir sýningarferil listamannsins, ljósmyndir af verkum hans sem og hugleiðingar hans sjálfs um myndlist sína. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1994






Magnús kjartanssonMagnús Kjartansson
Í tilefni sýningar á verkum Magnúsar Kjartanssonar að Kjarvalsstöðum 1994 var gefið út rit um verk sýningarinnar. Inntak hennar voru svokallaðar Píslasögumyndir, málverk sem fjalla um píslarsöguna á einn eða annan hátt. Inngang í ritið ritar Ólafur Gíslason. Ljósmyndir af verkum Magnúsar eru allar í lit. Aftast er að finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku.32 bls. Útgáfuár: 1994.  Uppseld



Magnús pálssonMagnús Pálsson
Árið 1994 var haldin umfangsmikil yfirlitssýning á verkum Magnúsar Pálssonar á Kjarvalsstöðum. Í bókinni sem kom út með sýningunni er að finna skýringartexta við verk listamannsins og greinar um list hans. Gunnar Árnason skrifar um viðhorf Magnúsar Pálssonar til listiðkunar, Ingólfur Arnarsson skrifar um viðhorf listamannsins til listkennslu og Ólafur Gíslason um viðhorf til myndlistar. Í bókinni birtist viðtal við listamanninn tekið af Carina Heden, aftast er ferilskrá. Allur texti bæði á íslensku og ensku. Ljósmyndir af verkum Magnúsar eru ýmist í lit eða svarthvítu. 103 bls. Útgáfuár: 1994.



ÓlafurÓlafur Gíslason - Vernissage
Þessi bók var gefin út í tilefni sýningarraðar á hugmyndafræðilegri myndlist Ólafs Gíslasonar í Reykjavík, Kaupmannahöfn og Helsinki. Bókin fjallar um allar uppsetningar sýningarinnar en grein skrifar Christiane Meyer-Stoll. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Allar myndir eru í svart hvítu. Útgáfuár: 1994.  Uppseld





Ragnheiður jónsdóttirRagnheiður Jónsdóttir
Árið 1994 var að Kjarvalsstöðum haldin sýning á nokkrum stórum, óhlutbundnum kolateikningum á pappír eftir Ragnheiði Jónsdóttur og samtímis var gefið út rit um listakonuna. Í það skrifar Halldór Björn Runólfsson grein um verkin og vinnuaðferð Ragnheiðar. Í ritinu er að finna litprentaðar myndir af teikningum listakonunnar og aftast er skrá yfir listferil hennar. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1994.  Uppseld




Skúlptúr skúlptúr skúlptúrSkúlptúr/Skúlptur/Skúlptúr - Íslensk samtímalist
Í tilefni Listahátíðar 1994 var ákeðið að framlag Listasafns Reykjavíkur skyldi vera sýning á verkum nokkurra íslenskra myndhöggvara samtímans. Bókina prýða litljósmyndir sem teknar voru frá sýningunni. Greinar skrifa Gunnar B. Kvaran, Ólafur Gíslason, Gunnar Árnason og Halldór Björn Runólfsson. Aftast er ferilskrá þeirra listamanna sem tóku þátt í sýningunni. Allur texti á íslensku og ensku. 145 bls.Útgáfuár: 1994.  Uppseld


 

Sigurður árni sigurðssonSigurður Árni Sigurðsson
Árið 1994 var haldin sýning að Kjarvalsstöðum á verkum myndlistarmannsins Sigurðar Árna Sigurðssonar sem þá hafði nýlokið myndlistarnámi í Frakklandi. Í tilefni sýningarinnar var gefin út bók þar sem gefur að líta nokkar litprentaðar myndir af verkum Sigurðar. Bernard Marcadé skrifar inngang og fjallar hann um tvísýnina í verkum listamannsins. Í bókinni er að finna ferilskrá Sigurðar Árna. Allur texti er bæði á íslensku og ensku.  32 bls. Útgáfuár: 1994.  Uppseld




Sólveig aðalsteinsdóttirSólveig Aðalsteinsdóttir
Í inngangi bókarinnar um Sólveigu Aðalsteinsdóttur skrifar Ólafur Gíslason að list hennar sé ,,fátæk list og nýtin,, en hún hefur unnið skúlptúra úr ýmsum ólíkum efniviði. Í bókinni gefur að líta ljósmyndir af verkum Sólveigar sem voru til sýnis á Kjarvalsstöðum árið 1994. Allar myndirnar eru í lit. Aftast í bókinni er að finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 199. Uppseld





Stíllinn í list ásmundarÁsmundur Sveinsson - Stíllinn í list Ásmundar
Þetta rit var gefið út í tilefni sýningar á verkum Ásmundar Sveinssonar sem ætlað var að draga upp mynd af sérstæðum stíl listamannsins. Allar myndir eru í svart hvítu. Texti er bæði á íslensku og ensku. 46 bls. Útgáfuár: 1995. Uppseld






BjarniBjarni Hinriksson
Árið 1995 var efnt til einkasýningar á teiknimyndasögum Bjarna Hinrikssonar á Kjarvalsstöðum. Í þessari sýningarskrá fjallar Jón Karl Helgason um teiknimyndasögur Bjarna. Aftast eru tvær stuttar sögur eftir listamanninn. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 21 bls. Útgáfuár: 1995






HversdagsrómantíkEins konar hversdagsrómantík
Þeir sextán listamenn sem sýndu verk sín á sýningunni ,,Eins konar hversdagsrómantík,, að Kjarvalsstöðum árið 1995 áttu það sameiginlegt að vera fæddir á sjöunda áratugnum, höfðu lokið formlegu myndlistarnámi og voru starfandi myndlistarmenn. Með sýngingunni var gefin út mappa sem inniheldur ritgerð sýningarstjórans, Auðar Ólafsdóttur, um stöðu samtímalistarinnar á Íslandi. Jafnframt fylgir í möppunni litprentað póstkort með mynd eftir hvern þátttakenda.  14 bls og 16 póstkort. Útgáfuár: 1995




Guðmundur einarssonGuðmundur Einarsson frá Miðdal
Í minningu hundrað ára afmælis Guðmundar Einarssonar frá Miðdal árið 1995 var haldin sýning á vatnslitamyndum hans að Kjarvalsstöðum. Með sýningunni var gefið út rit um Guðmund og er að finna í því litprentaðar myndir af nokkrum vatnslitaverka hans. Ritið hefur enn fremur að geyma ýtarlega ferilskrá listamannsins sem og grein eftir Kristínu G. Guðnadóttur um list Guðmundar og náin tengsl hans við náttúruna. Allur texti er á íslensku og ensku.32 bls. Útgáfuár: 1995




AbstraktlistÍslensk abstaktlist - endurskoðun/ Icelandic Abstract art - under review
Óhlutlæg myndlist, eða abstraktlist átti upphaf sitt í byrjun 20. aldar. Í þessarri bók leitast höfundur inngangs, Gunnar B. Kvaran, við að gera grein fyrir uppruna hinnar óhlutlægu myndlistar bæði hér á landi og erlendis. Bókin var gefin út í tilefni samsýningar 14 íslenskra myndlistarmanna sem allir fást við abstrakt myndlist. Sýningin var haldin að Kjarvalsstöðum árið 1995 en bókin hefur að geyma litljósmyndir af þeim verkum sem þar voru til sýnis. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 34 bls. Útgáfuár: 1995




MótunarárinJóhannes S. Kjarval - Mótunarár 1885-1930
Í september 1995 var opnuð sýning á Kjarvalsstöðum sem bar heitið ,,Kjarval mótunarár 1895-1930" Markmið þeirrar sýningar var að draga upp sem gleggsta mynd af æsku- og mótunarárum listamannsins og sýna hvernig hann, skref fyrir skref, fetaði sig áfram á listabrautinni. Bókin dregur dám af markmiði sýningarinnar og hefur að geyma ritgerð eftir Kristínu G. Guðnadóttur sýningastjóra þar sem saman er fléttað frásögn af lífi listamannsins, list hans og áhrifavöldum þessi mótunarár. Í bókinni er ýtarleg ferilsskrá Kjarvals frá 1885-1930 skráð af Ásmundi Helgasyni. Myndir af listamanninum og verkum hans eru í svart-hvítu. 48. bls. Útgáfuár: 1995


LeirlistÍslensk leirlist
Þessi bók var gefin út í tilefni samnefndrar sýningar á Kjarvalsstöðum árið 1995. Hér er að finna ritgerð um íslenska leirlist eftir Eirík Þorláksson listfræðing. Í bókinni eru litljósmyndir af verkum þeirra listamanna sem tóku þátt í sýningunni á Kjavalsstöðum og aftast er ferilskrá þeirra. Allur texti á íslensku og ensku. 56 bls. Útgáfuár: 1995




 


Kristín gunnlaugsdóttirKristín Gunnlaugsdóttir
Listakonan Kristín Gunnlaugsdóttir hefur farið hefðbundnari leið í sinni listsköpun en flestir listamenn henni samtíða. Kristín fæst við gerð íkona samkvæmt ströngum fornum reglum þar sem hið guðlega og yfirnáttúrulega er látið ráða ríkjum. Með sýningu að Kjarvalsstöðum á íkonum Kristínar árið 1995 var gefin út bók samnefnd listakonunni. Inngang ritar Ólafur Gíslason. Nokkrar litmyndir af verkum Kristínar má finna í bókinni sem og ferilskrá hennar. Allur texti er á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1995. Uppseld



Kristín jónsdóttirKristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
Textíllistakonan Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá hélt sýningu á verkum sínum að Kjarvalsstöðum árið 1995. Verk hennar eru oftar en ekki sambland af veflist og ritlist þar sem glittir í texta bak við ull. Í bók sem kom út með sýningunni ritar Ólafur Gíslason grein um merkingu textans í veflist Kristínar. Nokkrar ljósmyndir af verkum hennar er að finna í bókinni og eru þær allar í lit. Aftast er ferilskrá listakonunnar. Allur texti er á íslensku og ensku. 24 bls. Útgáfuár: 1995.  Uppseld




Kristján steingrímurKristján Steingrímur Jónsson
Í inngangi Ólafs Gíslasonar sem birtist í sýningarskrá um sýningu Kristjáns Steingríms Jónssonar segir að listamaðurinn máli skýjafarið á tilteknum stað og þrykki mynd af veðurfræðilegu merki þess veðrahams sem um ræðir ofan á myndflötinn. Veðurmyndir Kristjáns voru til sýnis að Kjarvalsstöðum árið 1995. Í ritinu eru litprentaðar myndir af verkunum og þar má einnig finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er á íslensku og ensku. 25 bls. Útgáfuár: 1995



Magnús tómassonMagnús Tómasson
Í apríl 1995 var opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á nýjum verkum eftir Magnús Tómasson, einn forsprakka SÚM- hópsins. Magnús hefur fengist nokkuð við umhverfislist og mátti m.a. sjá á sýningunni útilistaverk sem enn átti eftir að finna stað. Ritið, sem gefið var út í tilefni sýningarinnar, prýða nokkrar litljósmyndir af verkum Magnúsar. Það hefur einnig að geyma ævi- og ferilskrá listamannsins. Inngang ritar Ólafur Gíslason. Allur texti er bæði á íslensku og ensku.24 bls. Útgáfuár: 1995




Studio grandaStudio Granda - Í hlutarins eðli
Teikningar og ljósmyndir af verkum sem arkítektar Studio Granda hafa gert. Allur texti bæði á íslensku og ensku. Allar ljósmyndir í lit. Útgáfuár: 1995. Uppseld







Einar sveinssonEinar Sveinsson - Arkítekt og húsameistari Reykjavíkur
Sýningarskrá um Einar Sveinsson sem gefin var út í tilefni yfirlitssýningar sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 1995. Höfundur greina er Pétur H. Ármannsson. Allar myndir í svart hvítu. Í bókinni er æviágrip arkítektsins og úrdráttur á ensku.  48 bls.Útgáfuár: 1995. Uppseld

Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00