Listasafn Islands

Útgáfa 1996 - 1997

An upcoming exhibition

MótunarárinÁsmundur Sveinsson - Mótunarárin í list Ásmundar
Í þessu riti er farið yfir mótunarárin í lífi listamannsins Ásmundar Sveinssonar. Gunnar B. Kvaran ritar textann en hann var jafn framt sýningarstjóri samnefndrar sýningar á Ásmundarsafni árið 1996. Í bókinni er ferilskrá fyrstu starfsára Ásmundar Sveinssonar. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 63 bls. Útgáfuár: 1996




 Do it

Do-it
Sýningarstjórinn Hans Ulrich Obrist setti saman þríþætta sýningu undir yfirskriftinni Do it. Öll verkin voru búin til á staðnum eftir nákvæmum leiðbeiningum listamannanna í formi fyrirmælaskrár. Alls voru 54 listamenn sem tóku þátt en í þessari sýningarskrá eru stuttar skriflegar lýsingar á verkum þeirra og nokkrar teikningar. Aðfaraorð skrifar Hans Ulrich Obrist. Textinn er á íslensku. Ekkert blaðsíðutal. Útgáfuár: 1996


 

GuðrúnGuðrún Gunnarsdóttir
Á sýningu sinni ,,Listin á tímum þráðlausra samskipta'' sem haldin var að Kjarvalsstöðum árið 1996 sýndi Guðrún Gunnarsdóttir skúlptúra unna úr vír. Í tilefni sýningarinnar var gefin út mappa sem hefur að geyma ritgerð Auðar Ólafsdóttur um ,,vír-listina,, sem og litprentuð póstkort með ljósmyndum af skúlptúrum Guðrúnar auk ferilskráar listamannsins. Allur texti er á íslensku og ensku. 16 bls og 6 póstkort. Útgáfuár: 1996 




Guðrún hrönnGuðrún Hrönn Ragnarsdóttir
Með sýningu á verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur að Kjarvalsstöðum árið 1996 var gefin út mappa sem inniheldur ritgerð um verk listamannsins og sex litprentuð póstkort með myndum af verkum hennar. Verk Guðrúnar eru ekki endilega smá að smíðum en eru þó oftast kennd við minimalisma eða naumhyggju. Ritgerð ritar Halldór Björn Runólfsson. Meðfylgjandi er ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 22 bls og 6 póstkort. Útgáfuár: 1996




HaraldurHaraldur Jónsson
Hinn óefniskenndi veruleiki var meðal viðfangsefna myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar á sýningu sem hann hélt að Kjarvalsstöðum árið 1996. Með sýningunni var gefin út mappa sem inniheldur sex litprentuð póstkort með myndum af verkum Haraldar og stutta grein með hugleiðingum Gunnars J. Árnasonar um verk hans. Einnig er að finna ferilskrá listamannsins í möppunni. Allur texti er á íslensku og ensku. 22 bls. og 6 póstkort. Útgáfuár: 1996 




HringurHringur Jóhannesson
Árið 1996 var haldin yfirlitssýning á verkum Hrings Jóhannessonar að Kjarvalsstöðum. Með sýningunni var gefið út smárit tileinkað listamanninum en hann er einn merkasti raunsæismálari íslenskrar myndlistarsögu. Inngang, ,,Smá kapítuli Hrings'' skrifar Auður Ólafsdóttir listfræðingur. Nokkrar myndir af verkum listamannsins prýða ritið og eru þær allar í lit. Aftast er að finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku.  40 bls. Útgáfuár: 1996 




IngólfurIngólfur Arnarsson
Á sýningu að Kjarvalsstöðum árið 1996 sýndi Ingólfur Arnarsson óhlutbundin myndverk sín, fínlegar línur gerðar með blýanti eða vatnslit á pappír eða steypu. Með sýningunni var gefin út rit um listamanninn. Í því má finna litprentaðar myndir af verkum Ingólfs og nokkrar yfirlitsmyndir af sýningum sem hann hefur haldið. Texta um verk Ingólfs ritar Marianne Stockebrand. Aftast er ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1996




NáttúrusýnÍslensk náttúrusýn
Á sýningunni Íslensk náttúrusýn voru til sýnis verk eftir íslenska listamenn sem eiga það sameiginlegt að hafa sótt formræn eða inntaksleg viðfangsefni til náttúrunnar. Alls voru verk eftir 19 listamenn, fulltrúar ólíkra kynslóða sem eiga verk sem byggja á ólíkum hugmyndalegum forsendum. Með sýningunni var gefin út mappa með ritgerð eftir Gunnar B. Kvaran og 19 litprentuð póstkort með myndum eftir listamennina. Allur texti á íslensku og ensku. 24 bls. Útgáfuár: 1996 





KjartanKjartan Ólason
Ritgerð eftir Sindra Freysson um listamanninn Kjartan Ólason.
14 bls. Útgáfuár: 1996.






Steina vasulkaSteina Vasulka
Íslenska myndbandslistakonan Steina Vasulka sýndi nokkur verka sinna á sýningunni Leiftur Runir að Kjarvalsstöðum árið 1996. Í tilefni sýningarinnar kom út mappa sem hefur að geyma nokkur litprentuð póstkort með myndum af verkum listakonunnar. Mappan geymir auk þess stutta grein um verk Steinu ritaða af Gene Yongblood prófessor. Í henni ræðir hann m.a. um þátt hljóðsins í myndbandsverkunum, en Steina er menntaður fiðluleikari. Í möppunni er að finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er á íslensku og ensku. 26 bls og 6 póstkort. Útgáfuár: 1996.




Val fólksinsVal fólksins. Eftirsóttasta og síst eftirsóttasta málverk íslensku þjóðarinnar
Árið 1996 settu listamennirnir Komar og Melamid fram könnun meðal íslensku þjóðarinnar sem leiddi til niðurstöðu um eftirsóttasta og síst eftirsóttasta málverkið. Niðurstöðurnar voru til sýnis á Kjarvalsstöðum. Í þessari sýningarskrá er ritgerð um feril Komars og Melamids og önnur um hugmyndirnar að baki listsköpun þeirra, báðar eftir Hannes Sigurðsson. Sýningarskráin inniheldur einnig helstu niðurstöður könnunarinnar sem unnin var af Hagvangi og viðtal við Alexander Melamid. Allur texti á íslensku. Allar myndir í svarthvítu. 74 bls. Útgáfuár: 1996


Barbara westmanBarbara Westman
Í tilefni sýningar bandarísku listakonunnar Barböru Westman ,,Leiðin til Reykjavíkur'' sem haldin var að Kjarvalsstöðum árið 1997 var gefið út smárit samnefnt listakonunni. Þar eru litprentaðar myndir af verkum sýningarinnar en þau eru öll unnin með vatnslitum á pappír og eru túlkun á íslensku landslagi. Í ritinu er grein eftir Arthur C. Danto sem ber nafnið ,,Barbara Westman og reglur listarinnar" þar er einnig að finna grein eftir listakonuna sjálfa um Íslandsferðina. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 24 bls. Útgáfuár: 1997



Erró í færeyjumErró í Færeyjum
Útgefandi: Listasavn Föroya
Bókin kom út í tilefni sýningar á verkum eftir Erró sem haldin var í Færeyjum árið 1997. Aðfararorð ritar Bárður Jákupsson en í bókinni er einnig grein eftir Gunnar B. Kvaran og brot úr viðtölum sem tekin voru við Erró á árunum 1969-1988. Auk þessa er æviferill listamannsins rakinn. Litmyndir af verkum á sýningunni prýða bókina. Bókin er á færeysku.
32 bls. Útgáfuár: 1997


 

Figura - figuraFígúra Fígúra
Sýningin Figura-Figura var sett upp í Konsthallen í Gautaborg, Svíþjóð árið 1991. Á sýningunni voru verk sex íslenskra listamanna, Brynhildar Þorgeirsdóttur, Helga Þorgils Friðjónssonar, Huldu Hákon, Jóns Óskars, Kjartans Ólasonar og Svölu Sigurleifsdóttur. Í sýningarskránni er rakin ferilskrá listamannanna með myndum af þeim og verkum eftir þá. Inngang ritar Gunnar B. Kvaran. Allur texti er á sænsku. Aftast er listi með þeim verkum sem voru á sýningunni. 61 bls. Útgáfuár: 1997.  Uppseld




FootnotesFootnotes
Sýningin Footnotes var skipulögð af Samtímalistamiðstöðinni í Vilníus, Litháen og sett upp á Kjarvalsstöðum árið 1997. Í sýningarskrá eru greinar eftir Evaldas Stankevicius og Raimundas Malasauskas um samtímalist í Litháen. Flestar myndir eru í lit. Aftast er ferilskrá þátttakenda. Allur texti á ensku (meðfylgjandi þýðing á íslensku á lausblöðum). 30 bls.  Útgáfuár: 1997



JaquesJaques Monory
Franski myndlistarmaðurinn Jaques Monory hélt sýningu á verkum sínum að Kjarvalsstöðum árið 1997. Jaques Monory er einn af leiðtogum þess hóps myndlistarmanna sem kennir sig við frásagnarmálverið og kom fram sem andsvar við bandarísku popplistinni í byrjun sjöunda áratugarins. Í ritinu sem kom út í tilefni sýninarinnar er grein eftir Rémy Fenzy um verk Monory. Það hefur að geyma litprentaðar myndir af verkum myndlistarmannsins og ferilskrá hans. Texti er einungis á íslensku. 24 bls. Útgáfuár: 1997


 


JónínaJónína Guðnadóttir
Leirlistakonan Jónína Guðnadóttir hélt sýningu á Kjarvalsstöðum árið 1997. Í sýningarskrá er að finna grein eftir Eirík Þorláksson um list Jónínu, ferilskrá hennar og litmyndir af verkum. Allur texti er bæði á ensku og íslensku.
24 bls. Útgáfuár: 1997






Kristján davíðssonKristján Davíðsson
Á áttræðisafmæli Kristjáns Davíðssonar var haldin sýning á verkum hans frá undanförnum tíu árum, eða frá 1987-1997. Í tilefni sýningarinnar var gefið út rit tileinkað listamanninum en hann hefur getið sér orð fyrir sérstaka tækni við gerð abstrakt verka. Inngang ritar Eiríkur Þorláksson forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Nokkrar myndir af verkum listamannsins eru í ritinu og eru þær allar í lit. Aftast er að finna ferilskrá listamannsins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 32 bls. Útgáfuár: 1997





LarryLarry Bell
Sýningin Glerrými var haldin að Kjarvalsstöðum árið 1997. Þar voru á ferðinni verk eftir bandaríska listamanninn Larry Bell sem merkur fulltrúi óhlutbundinnar myndlistar og einn forsprakki naumhyggjustefnunnar í myndlist. Í ritið sem gefið var út í tilefni sýningarinnar ritar Larry Bell grein um glerskptúra sína. Í því má jafn framt finna litprentaðar ljósmyndir af nokkrum verka hans. Aftast er ferilskrá listamannsins. Allur texti er á íslensku og ensku.





Sigurður guðmundssonSigurður Guðmundsson arkitekt
Sýningarskrá gefin út í tilefni yfirlitssýningar á verkum Sigurður Guðmundssonar arkítekts á Kjarvalsstöðum 1997. Sigurður var annar Íslendinga til að hljóta menntun í byggingarlist og fyrstur til að hefja rekstur sjálfstæðrar teiknistofu árið 1925. Sýningarskráin inniheldur myndir og teikningar af verkum Sigurður og æviágrip hans. Allur texti bæði á íslensku og ensku. 48 bls.  Útgáfuár: 1997.  Uppseld
24 bls. Útgáfuár: 1997



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.34.2012