Útgáfa 1998 - 1999
-30 +60
-30 +60 vísar til aldurs þeirra listamanna sem tóku þátt í samnefndri samsýningu að Kjarvalsstöðum árið 1998. Tilgangurinn var sá að leiða saman hesta yngstu og elstu kynslóðar starfandi listamanna í landinu. Í bókina sem kom út í tilefni sýningarinnar ritar Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, inngang. Myndir af verkum listamannanna í bókinni eru í lit. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 48 bls. Útgáfuár: 1998
Erró 1984-1998
Í þessari bók gefur að líta myndir af verkum eftir Erró frá tímabilinu 1984-1998. Myndirnar eru ýmist í lit eða svart hvítu. Aðfararorð rita: Eiríkur Þorláksson, Lóraánd Heigyi, Gunnar B. Kvaran, Jan Kriz og Robert Fleck. Í bókinni er æviágrip listamannsins og ferilskrá á frönsku. 430 bls. Útgáfuár: 1998 Uppseld
Framsýning: Föroysk nútíðarlist
Árið 1998 settu Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Akureyerar og Listasafn Færeyja upp farandsýningu á færeyskri samtímalist. Í bókinni sem gefin var út af þessu tilefni er grein eftir Gunnar Hoydal um færeyska myndlist. Myndir af verkum þátttakenda sýningarinnar er að finna í bókinni og jafn framt ferilskrá þeirra. Allur texti er á íslensku og færeysku. 36 bls. Útgáfuár: 1998
Georg Guðni
Georg Guðni er einn af þeim listamönnum sem hefur átt þátt í að koma á tengslum myndlistarog náttúru eftir langt tímabil óhlutbundinnar listar í íslenskri myndlistarsögu. Árið 1998 var haldin sýning á málverkum Georgs að Kjarvalsstöðum. Í smáriti sem gefið var út af tilefni sýningarinnar ritar Jón Proppé grein um myndlist Georgs. Litprentaðar myndir af verkum myndlistarmannsins er að finna í ritinu sem og ferilskrá hans. Allur texti er á íslensku og ensku. 30 bls. Útgáfuár: 1998. Uppseld
Ólafur Elíasson - Hellisgerði
Þessi bók, sem inniheldur einungis svart hvítar ljósmyndir teknar í Hellisgerði í Hafnarfirði, var gerð í 250 eintökum sem hluti sýningar Ólafs Elíassonar að Kjarvalsstöðum árið 1998. 52 bls. Útgáfuár: 1998
Rúrí-Paradís- Hvenær?
Þessi sýningarskrá var gefin út með sýningunni Paradís - Hvenær? sem listakonan Rúrí setti upp á Kjarvalsstöðum árið 1998. Sýningin var eitt samfellt verk sem ætlað var að sýna framgöngu mannfólksins og framkomu við náungann undir lok 20.aldar, þegar fimmtíu ár voru liðin frá undirritun Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Grein skrifar Dorothea van der Koelen. Aftast er ferilskrá listakonunnar. Bókina prýða fjöldi litmynda af listaverkinu. Allur texti bæði á íslensku og ensku.
40 bls. Útgáfuár: 1998
Ásmundur Sveinsson - Bókin um Ásmund
Skoðanir Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara hafa hvergi komið betur fram en í viðtölum hans við blaðamanninn og skáldið Matthías Johannessen, sem voru fyrst gefin út í þessari bók árið 1971. Matthias lýsir Ásmundi, vinnubrögðum hans, þjóðlegum uppruna og alþjóðlegum viðhorfum. Í bókinni eru 12 myndir af Ásmundi og verkum hans. 56 bls. Útgáfuár: 1999
Bensín
Þessi bók var gefin út í tilefni sýningar ljósmyndarans Spessa á Kjarvalsstöðum árið 1999. Bókina prýða fjöldi litmynda af ólíkum bensínstöðvum á Íslandi. Jón Proppé og Dominique Nahas rita greinar, aftast er ferilsskrá listamannsins. Allur texti bæði á íslensku og ensku. 117 bls. Útgáfuár: 1999
Borgarhluti verður til
Byggingarlist og skipulag i Reykjavík eftirstríðsáranna. Sýningarskrá gefin út í tilefni samnefndrar sýningar árið 1999. Skráin inniheldur grein eftir Pétur H. Ármannsson um Byggðina við Sund 1940-1970. Í henni er enn fremur að finna ljósmyndir og teikningar af byggingum og lista yfir æviatriði og helstu verkefni þeirra arkítekta sem ritið tekur til umfjöllunar. Greinin er bæði á íslensku og ensku. 56 bls. Útgáfuár: 1999. Uppseld
Design /Jasper Morrison, Marc Newton, Michael Young
Árið 1999 var að Kjarvalstöðum haldin sýning á verkum þriggja hönnuða sem allir eru á meðal hinna fremstu á sínu sviði á alþjóðavettvangi. Í sýningarskránni sem kom út með sýningunni eru greinar eftir Guðmund Odd Magnússon hönnuð og Marcus Field ritstjóra tímaritsins Blueprint. Í sýningarskránni er ferill hönnuðanna þriggja rakinn og þar eru einnig myndir af verkum þeirra. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 28 bls. Útgáfuár: 1999
Grafík
Á afmælisári íslenskra grafíklistamanna árið 1999 var haldin að Kjarvalsstöðum samsýning verkum starfandi grafíklistamanna á íslandi sem og nokkurra erlendra grafíklistamanna. Af því tilefni var gefin út bók sem miðar bæði að því að kynna uppruna og mismunandi tegundir grafíklistarinnar sem og verk og hugleiðingar þeirra sextán listamanna sem tóku þátt í sýningunni. Texta um sögu grafíklistarinnar skrifar Knut Ormhaug, hugleiðingar um grafíklistina skrifa listamennirnir en auk þess er að finna hugleiðingu Eiríks Þorlákssonar, forstöðumanns Listasafns Reykjavíkur um grafíklistina. Aftast er stutt ferilskrá allra þátttakenda í sýningunni. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Allar ljósmyndir af verkum listamannanna eru í lit. 52 bls. Útgáfuár: 1999
Hafsteinn Austmann
Þetta rit er gefið út í tilefni sýningar á óhlutbundinni myndlist Hafsteins Austmanns á Kjarvalsstöðum 1999. Grein um myndlist Hafsteins skrifar Aðalsteinn Ingólfsson. Allur texti er á íslensku og ensku. Myndir af verkum listamannsins eru í lit. Aftast er ferilskrá. 31 bls. Útgáfuár: 1999.
Jóhannes S. Kjarval - Af trönum meistarans
,,Jóhannes S. Kjarval - Af trönum meistarans 1946-1972" var þriðja og síðasta yfirlitssýningin í röðinni sem hófst með mótunarárunum. Á þessu síðasta skeiði málarans bregður oft fyrir verum á myndfletinum, ævintýarlegu huldufólki í landslaginu. Hann er orðinn fullmótaður listamaður. Sem fyrr var gefin út samnefnd bók í tilefni sýningarinnar. Höfundur er Kristín G. Guðnadóttir sýningarstjóri. Bókin hefur að geyma ýtarlega ferilskrá síðustu starfsár Kjarvals skráða af Ásmundi Helgasyni. Myndir eru allar í svart hvítu. 48 bls. Útgáfuár: 1999
Red Shift - Painting in and out of focus / Rauðvik
Markmiðið með sýningunni Rauðvik - Málverk í og utan fókuss var að kynna verk fjögurra listamanna sem hafa unnið með ytri mörk málverksins; Tuma Magnússon, Claus Egemose, Johan van Oord og Nina Roos. Sýningin var sett upp á Kjarvalsstöðum árið 2000. Sýningin var einnig sett upp í Danmörku, Finnlandi og Hollandi. Í sýningarskrá eru litljósmyndir af verkum listamannanna og ferilskrá þeirra. Allur texti er á ensku en þýðing á íslensku er meðfylgjandi á lausblöðum. 36 bls. Útgáfuár: 1999. Uppseld
Prenta