Útgáfa 2000 - 2001
An upcoming exhibition
Gangurinn
Sýningarskrá gefin út með samnefndri sýningu í Hafnarhúsinu árið 2000. Sýningin var haldin í tilefni af 20 ára afmæli Gallerí Gangs sem listamaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson rekur á heimili sínu. Gunnar J. Árnason ritar inngang. Allur texti bæði á íslensku og ensku. Allar myndir í lit. 55 bls. Útgáfuár: 2000
Garðhúsabær
Þessi sýningarskrá var gefin út í tilefni samnefndrar sýningar á Kjarvalsstöðum árið 2000. Sýningin var sameiginlegt framlag Listasafns Reykjavíkur og Arkitektafélags Íslands til dagskrár Listahátíðar í Reykjavík og Reykjavíkur "Menningarborgar Evrópu árið 2000". Í skránni eru stuttar hugleiðingar þeirra sem tóku þátt í sýningunni um garðhúsabæi og myndir af framlagi hvers og eins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Allar myndir í svarthvítu. Útgáfuár: 2000
Hærra til þín - Trúarleg minni í vestnorrænni list
Sýningin Hærra til þín var framlag Ásmundarsafns og Listasafns Sigurjóns Ólafssonar til Kristnihátíðar á Íslandi og Reykjavíkur "Menningarborgar Evrópu" árið 2000. Í þessari veglegu sýningarskrá eru greinar eftir Herra Karl Sigurbjörnsson biskup, Charlotte Christensen, Troels Andersen, Eirík Þorláksson, Hákon A. Andersen, Bárður Jákupsson og Per Hovedenakk. Sýningarskráin inniheldur litmyndir af verkum sýningarinnar og æviágrip þeirra listamanna sem tóku þátt. Aftast er listaverkaskrá. Allur texti er á íslensku og dönsku. Allar myndir eru í lit. 80 bls. Útgáfuár: 2000
Mót
Sýningin Mót sem sett var upp á Kjarvalsstöðum árið 2000 var unnin í samvinnu við Form Ísland og Hönnunarsafn Íslands. Markmið sýningarinnar var að opna augu sem flestra fyrir gildi hönnunar. Í veglegri sýningarskrá er yfirlit yfir hundrað ár í sögu hönnunar á Íslandi og umfjöllun um þá hönnuði sem tóku þátt í sýningunni. Í skránni er enn fremur viðtal við Hörð Ágústsson, arkítekt. Aðfaraorð rita Guðmundur Oddur og Þorvaldur Þorsteinsson. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Allar myndir eru í lit. Útgáfuár: 2000.
Veg(g)ir/Ways/Walls
Verkefnið Veg(g)ir fólst í að að veita sex listamönnum tækifæri til að vinna úr hugmyndum sínum á eða út frá stórum fleti og gefa almennum gestum safnsins kost á að fylgjast með þróun listaverks allt frá upphafi til enda. Þessi sýningarskrá skýrir frá verkefninu og fjallar stuttlega um hvern þátttakanda og verkið hans. Allur texti á íslensku og ensku. Allar myndir í lit. 41 bls. Útgáfuár: 2000
A.R.E.A frá suður Afríku -Art Region End of Africa
Áramótin 2000-2001 var sett upp sýning á suður-afrískri samtímalist á Kjarvalsstöðum. Sýningarskráin sem gefin var út af því tilefni inniheldur grein um suður-afríska samtímalist eftir sýningarstjórann Gavin Young, litmyndir af völdum verkum á sýningunni og upplýsingar um þátttakendur sýningarinnar. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 56 bls. Útgáfuár: 2001
Errósafn - yfirlitssýning 2001
Bókin er gefin út í tilefni yfirlitssýningar á verkum eftir Erró í Hafnarhúsinu. Aðfaraorð skrifar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bókin inniheldur greinar eftir Þorbjörgu Br. Gunnarsdóttur deildarstjóra safnadeildar og Eirík Þorláksson forstöðumann Listasafns Reykjavíkur. Auk þess inniheldur bókin heildar ferilsskrá listamannsins og hana prýða fjöldi litmynda af verkum eftir Erró.57 bls. Útgáfuár: 2001
Gretar Reynisson - 1461 dagur
Gretar Reynisson átti verkin á sýningunni 1461 dagur sem sett var upp á Kjarvalsstöðum árið 2001. Nafn sýningarinnar vísar til þess tíma sem verkið hefur verið í vinnslu, en hér er um að ræða svokallað "work in progress" sem hófst 1. janúar, 1997. Greinar ritar Ólafur Gíslason. Myndir af verkum Gretars eru í lit. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Aftast er ferilskrá listamannsins. 32 bls. Útgáfuár: 2001
Gullpensillinn - The Golden Brush
Sá hópur myndlistarmanna sem kennir sig við Gullpensilinn á það sameiginlegt að nota málverkið sem miðil í list sinni. Hér er um að ræða 14 íslenska myndlistarmenn sem allir voru við nám þegar málverkið var á undanhaldi í Evrópu. Í bókina, sem gefin var út í tilefni sýningar hópsins að Kjarvalsstöðum árið 2001, ritar Eiríkur Þorláksson inngang, en þar má einnig finna ljóðið ,,Bréf til blaðsins,, eftir Sjón. Myndir af verkum listamannanna eru litprentaðar. Aftast er að finna stutta ferilskrá hvers listamanns. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 56 bls. Útgáfuár: 2001. Uppseld
Ísland öðrum augum litið
Landið séð með augum erlendra gesta og tilraunir þeirra til að lýsa því sem fyrir augu ber var inntak sýningarinnar ,,Ísland öðrum augum litið,, sem haldin var í Hafnarhúsinu áramótin 2000-2001. Þar mátti enn fremur sjá verk íslenskra myndlistarmanna sem hafa glímt við að lýsa menningu þjóðarinnar. Í bókinni sem gefin var út í tilefni sýningarinnar eru litprentaðar myndir af nokkrum verkum sýningarinnar. Inngang ritar Eiríkur Þorláksson. Grein um Íslandsheimsóknir útlendinga á tuttugustu öld ritar Jón Karl Helgason. Allur texti er á íslensku og ensku. 40 bls. Útgáfuár: 2001
Íslenskar teikningar / Norskar teikningar
Árið 2001 voru samtímis haldnar tvær sýningar tileinkaðar íslenskum og norskum teikningum. Önnur þeirra var sett upp í Osló og sýndi teikningar eftir 4 íslenska myndlistarmenn, hin var sett upp í Hafnarhúsinu og sýndi teikningar þriggja norskra myndlistarmanna. Í tilefni sýninganna var gefin út bók þar sem gefur að líta litprentaðar myndir af teikningum þátttakenda sýninganna. Bókin hefur einnig að geyma greinar eftir Gunnar J. Árnason og Holger Koefoed um listamennina og verk þeirra. Allur texti er á íslensku, norsku og ensku. Bókin inniheldur ferilskrá þátttakendanna.48 bls. Útgáfuár: 2001
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.34.2012