Listasafn Islands

Útgáfa 2002 - 2004

An upcoming exhibition

BreiðholtByggt yfir hugsjónir
Breiðholt: frá hugmynd að veruleika
Sýningarskrá með sýningu sem haldin var í Hafnarhúsinu. Greinar eftir Ágústu Kristófersdóttur, Eggert Þór Bernharðsson og Birnu G. Bjarnleifsdóttur. 38 bls. Útgáfuár: 2002





HannesHannes Lárusson
Árið 2002 var á Kjarvalsstöðum haldin sýning á innsetningum Hannesar Lárussonar, Hús í hús. Í tilefni sýningarinnar kom út bók þar sem Gunnar J. Árnason fjallar á greinargóðan hátt um þau verk, gjörninga og innsetningar sem listamaðurinn hefur gert á ferli sínum. Bókina prýða margar ljósmyndir, allar í lit. Texti er bæði á íslensku og ensku. Aftast er ferilskrá listamannsins og auk þess ritgerð um innsetninguna Hús í hús eftir Ninu Möntmann á íslensku, ensku og þýsku. Bókinni fylgir enn fremur lítið pappírsmódel af húsi sem lesandinn getur sett saman sjálfur og tvö póstkort. 48 bls. Útgáfuár: 2002



Myndhöggvarafélagið í reykjavík - mhrMHR - 30
30 ára afmælissýning Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík var haldin í Hafnarhúsinu árið 2002. Sýningin var samvinnuverkefni Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og Listasafns Reykjavíkur. Í sýningarskrá skrifa Auður Ólafsdóttir listfræðingur og Eiríkur Þorláksson greinar. Skráin geymir litljósmyndir af verkum þeirra listamanna sem tóku þátt. Aftast er ferilskrá þeirra. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 64 bls. Útgáfuár: 2002 



MilliMilli goðsagnar og veruleika - nútímalist frá arabaheiminum
Rit gefið út með samnefndri sýningu sem var sett upp á Listasafni Akureyrar árið 2002 og í Listasafni Reykjavíkur 2002-2003. Í ritinu er að finna greinar um arabíska nútímalist, upplýsingar um listamennina sem tóku þátt í sýningunni og lista yfir verkin sem voru sett upp. Allur texti bæði á íslensku og ensku. Allar myndir í lit. 40 bls. Útgáfuár: 2002





HringekjurEyjólfur Einarsson - Hringekjur lífsins - The Carousels of Life
Sýningarskráin heitir eftir samnefndri sýningu listmálarans Eyjólfs Einarssonar sem haldin var á Kjarvalsstöðum árið 2003. Grein um hringekjur Eyjólfs ritar Halldór Björn Runólfsson. Í sýningarskránni eru litmyndir af verkunum sem voru á sýningunni. Aftast er ferilskrá listamannansins. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 48 bls. Útgáfuár: 2003





Helgi þorgilsHelgi Þorgils Friðjónsson - 2003
Í tilefni einkasýningar Helga Þorgils Friðjónssonar á Kjarvalsstöðum 2003 var gefin út sýningarskrá. Eiríkur Þorláksson skrifar inngang en Ólafur Gíslason skrifar grein um verk listamannsins. Sýningarskráin hefur að geyma fjölda litmynda af verkum Helga og ferilskrá hans. Allur texti er á íslensku og ensku. 45 bls. Útgáfuár: 2003. Uppseld 



HugarleifturHugarleiftur - Diane Neumaier, Christos Chrissopoulos
Sýning í Hafnarhúsinu 2003. Allar ljósmyndir í lit. Texti á íslensku og ensku. 40 bls. Útgáfuár: 2003








PenetrationPenetration - Patrick Huse
Þessi sýningarskrá var gefin út í tilefni sýningarinnar Penetration í Hafnarhúsinu árið 2003. Í bókinni eru greinarnar Nature as Construction eftir Gunnar Sörensen og Patrick Huse and the object as a data carrier eftir Barbara S. Krulik. Bókin inniheldur litmyndir af verkum listamannsins og myndir frá sýningunni sem einnig var sett upp í Noregi. Aftast er ferilskrá. Allur texti á ensku. 48 bls. Útgáfuár: 2003


 

Yfir bjartsýnisbrúnaYfir Bjartsýnisbrúna
Sýning á alþýðulist í Hafnarhúsinu árið 2003, haldin í samvinnu við Safnasafnið í Eyjafirði. Sýningarskráin inniheldur ljósmyndir í lit af verkum listamannanna sem tóku þátt, auk hugleiðinga þeirra um verk sín. Niels Hafstein ritar grein um alþýðulist. Allur texti á íslensku og ensku. Aftast er ferilskrá listamannanna. 55 bls. Útgáfuár: 2003




Des dels confins de la terraDes dels confins de la terra
Sýningarskrá sem gefin var út til kynningar á verkum eftir unga íslenska listamenn á sýningu í Barselóna á Spáni. Grein um íslenska samtímalist skrifar Auður Ólafsdóttir, einnig er að finna greinar eftir David G. Torres og Ferran Mascarell. Ljósmyndir af verkum listamannanna eru í lit og aftast er ferilskrá þeirra. Allur texti á spænsku, katalónsku og ensku. 52 bls. Útgáfuár: 2004




Looking furtherLooking Further, Thinking Through
Þessi sýningarskrá var gefin út í tilefni samnefndrar sýningar á Kjarvalsstöðum árið 2004. Hér var ungum listamönnum frá Barselóna boðið að setja upp verk í Reykjavík og ungum íslenskum listamönnum á mótið boðið að sýna verk sín á Spáni. Í sýningarskrá eru litljósmyndir af verkum spænsku listamannanna. Greinar rita Martí Peran, David G. Torres og Auður Ólafsdóttir. Allur texti á íslensku, ensku og katalónsku. Allar myndir í lit. 61 bls. Útgáfuár: 2004



Ólafur elíassonÓlafur Elíasson - Frost Activity
Sýningarskrá gefin út í tilefni sýningar Ólafs Elíassonar í Hafnarhúsinu 2004. Greinar rita Gunnar J. Árnason og Paul Virilio. Allur texti er á ensku og íslensku. Ljósmyndir í sýningarskránni eru allar í lit.
bls. Útgáfuár: 2004


 


Ragna róbertsdóttirRagna Róbertsdóttir
Sýningin Kynngikraftur eða Patterns of Energy var sett upp á Kjarvalsstöðum árið 2004. Í sýningarskrá ritar Sabine Russ grein um listakonuna. Fjöldi ljósmynda frá sýningunni og af verkum Rögnu prýða skrána. Aftast er ferilskrá listakonunar. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 58 bls. Útgáfuár: 2004






TextíllistTextíllist 2004
Sýningaskrá gefin út í tilefni samnefndrar sýningar á Kjarvalsstöðum árið 2004. Í sýningarskrána rita Eiríkur Þorláksson, Hildur Bjarnadóttir og Kristveig Halldórsdóttir, Ragna Sigurðardóttir og Eva Hessler greinar. Litljósmyndir af verkum þátttakenda sýningarinnar og ferilskrá þeirra eru einnig í skránni. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. 91 bls. Útgáfuár: 2004




WorldscapesWorldscapes - The Art of Erró
Þetta rit var gefið út í tilefni sýningar á verkum eftir Erró í Grey Art Gallery í New York árið 2004. Ritið prýða fjöldi litprentaðra mynda af verkum eftir listamanninn. Greinar rita, Eiríkur Þorláksson, Gregory Volk og Þorbjörg Gunnarsdóttir. 128 bls. Útgáfuár: 2004



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.35.2012