Útgáfa 2005 - 2007
Gisp ! 9
Þessi bók kom út í tilefni sýningar Gisp! í Hafnarhúsinu árið 2005. Greinar eftir Bjarna Hinriksson, Ingemar Begtsson, Úlfhildi Dagsdóttur, Heimi Snorrason, Hugleik Dagsson og Ingu Maríu Brynjarsdóttur, auk þess fjölmargar myndasögur og annað frumsamið efni eftir marga höfunda. Texti á Íslensku en úrdráttur á ensku. Allar myndir í lit. 200 bls. Útgáfuár: 2005
Hörður Ágústsson - Endurreisnarmaður íslenskra sjónmennta
Árið 2005 var sýning á höfundarverki Harðar Ágústssonar á Kjarvalsstöðum. Þessi bók hefur að geyma greinar um Hörð Ágústsson eftir Eirík Þorláksson, Hildi Hákonardóttur, Pétur H. Ármannsson og Guðmund Odd Magnússon. Ýmsar greinar sem Hörður lét frá sér á löngum ferli eru hér endurbirtar, svo sem greinar um Byggingarlist frá 1955. Ítarleg skrá um helstu æviatriði og verk Harðar eru einnig í bókinni. Myndir af verkum og frá ferli Harðar eru bæði í lit og svart hvítu. 102 bls. Útgáfuár: 2005
Pakkhús Postulanna / Post postilla
Þessi bók var gefin út með sýningunni Pakkhús Postulanna sem sett var upp í Hafnarhúsinu árið 2006. Í bókinni er að finna greinar og viðtöl við þátttakendur sýningarinnar en einnig við starfsfólk Listasafns Reykjavíkur. Ritstjórar eru Oddný Eir Ævarsdóttir, Unnar Örn Jónaasson og Goddur. Aftast er ferilskrá listamannanna. Til á íslensku og ensku. 126 bls. Útgáfuár: 2006
Skoðum myndlist
Heimsókn í Listasafn Reykjavíkur
Bókin kynnir íslenska myndlist fyrr og nú fyrir börnum á öllum aldri og fjölskyldum þeirra. Höfundar Anna C. Leplar og Margrét Tryggvadóttir. Allur texti á íslensku. Myndir eru litprentaðar. 104 bls. Útgáfuár: 2006
Þórdís Aðalsteinsdóttir
Þessi sýningarskrá var gefin út með sýningunni Því heyrist hvíslað að einhverjir muni komast af sem haldin var að Kjarvalsstöðum árið 2006. Greinar skrifa Ólöf K. Sigurðardóttir og Charles Stuckey. Fjölmargar litmyndir af verkum Þórdísar eru í skránni, einnig ferilskrá hennar og skrá yfir þau verk sem voru á sýningunni. Útgáfuár: 2006
Blonde Miss World 1951-
Þessi sýningarskrá er gefin út í tilefni sýningar á seríunni Ljóshærðar fegurðardrottningar eftir listamanninn Birgi Snæbjörn Birgisson. Inngang ritar Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur en grein um listamanninn og verk hans er eftir Mika Hannula sem jafn framt er sýningarstjóri sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. Allur texti er á íslensku og ensku. Myndir í bókinni eru litprentaðar. 78 bls. Útgáfuár: 2007. Kaupþing styrkir útgáfuna.
Eggert Pétursson
Þessi glæsilega sýningarskrá er gefin út í tilefni yfirlitssýningar á verkum Eggerts Péturssonar á Kjarvalsstöðum árið 2007. Allar myndir eru í lit. 144 bls. Útgáfuár: 2007
Gjörningaklúbburinn / The Icelandic Love Corporation
Þessi veglega bók er gefin út í tilefni tíu ára afmælis Gjörningaklúbbsins. Á þeim tímamótum setti klúbburinn upp sýningu í Hafnarhúsinu. Útgáfuár: 2007
Hreinn Friðfinnsson
Þessi bók um listamanninn Hrein Friðfinnsson er gefin út af Serpentine Gallery og Listasafni Reykjavíkur í tilefni af yfirlitssýningu á verkum hans árið 2007. Bókin inniheldur stuttar greinar eftir Kitty Scott, Ólaf Elíasson og Snorra Sigfús Birgisson, Hans Ulrich Obrist á viðtal við listamanninn. Allur texti er á ensku. Allar myndir eru litprentaðar. 79 bls. Útgáfuár: 2007
Magma / Kvika
Sýningarskrá gefin út í tilefni sýningar á íslenskri samtímahönnun sem haldin var á Kjarvalsstöðum sumarið 2007. Útgáfuár: 2007
Roni Horn - My Oz
Þessi bók var gefin út af Listasafni Reykjavíkur árið 2007 í tilefni sýningar á verkum Roni Horn í Hafnarhúsinu. Allur texti er bæði á íslensku og ensku. Allar myndir eru litprentaðar. 118 bls.
Útgáfuár: 2007
Prenta