Listasafn Reykjavíkur

Útgáfa 2008 - 2009

SkáklistSKÁKLIST
Síðustu árin hefur áhugi listamanna á skák farið vaxandi, einkum vegna frumkvöðlastarfs RS&A. Margir þekktustu listamenn 21. aldar hafa hlotið innblástur frá verkum forvera sinna á 20. öld og auðgað skáklistina með nýjum, listrænum hugmyndum. Í þessari bók, sem er gefin út af tilefni sýningar Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, verður leitast við að gera grein fyrir nokkrum þessara nýju hugmynda. Bókin er prýdd fjölmörgum myndum. Texti er allur á íslensku og ensku.
Útgáfa Listasafn Reykjavíkur 2009. bls 143



TilraunamaraþonTILRAUNAMARAÞON
Glæsileg sýningarskrá hefur verið gefin út og spannar hún viðburðinn í Hafnarhúsinu, fyrra maraþonið í Serpentine Gallery og sýninguna Laboratorium.  Meðal þeirra sem rita í skránna er heimspekingurinn og mannfræðingurinn Bruno Latour. Bókin er prýdd fjölmörgum myndum. Texti er allur á ensku. Útgáfa Listasafn Reykjavíkur og Koenig Books, London. At the Serpentine Gallery.  bls 238.





Bragi ÁsgeirssonAUGNASINFÓNÍA
Myndlist Braga Ásgeirssonar í sextíu ár.
Bragi Ásgeirsson er fjölhæfur myndlistamaður sem hefur afkastað miklu á sextíu ára ferli. Hann aflaði sér yfirgripsmiklar menntunar í myndlistinni og nam í mörgum löndum. Myndlist hanns er víðfeðm - teikningar, fígúratíf grafík, upphleypt popplistaverk og abstrakt málverk. Í þessari bók og á samnefndri sýningu í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum er í fyrsta sinn veitt sýn yfir langan og merkan feril Braga. Bókin er prýdd fjölmörgum myndum, bæði ljósmyndum sem varða sögu listamannsins og að sjálfsögðu listaverkunum sem hann hefur fært okkur. Í bókinni er einnig ítarlegt samtal Þórodds Bjarnasonar við Braga.
159.bls. Útgáfa: Bókaútgáfan Opna og Listasafn Reykjavíkur 2008. Texti á íslensku.



Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist
Á þessari sýningu stefnir Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur saman verkum svo áhorfandinn geti kannað þau í fjölbreytileika sínum. Hún hefur safnað saman listamönnum af mörgum kynslóðum, Þar á meðal eru nokkrir af þekktustu ungu listamönnum sem starfa á Íslandi í dag. Æsa er einnig ritstjóri þessa rits. Allur texti er á íslensku og ensku. 94 bls. Útgáfa Listasafn Reykjavíkur 2008.


 


D-SalurUngir íslenskir myndlistamenn í D ::: sal Listasafns Reykjavíkur
Til að bjóða yngri listamönnum til samstarfs við safnið var sett á laggirnar í Hafnarhúsi röð sýninga í D-sal sem er af viðráðanlegri stærð en hentar áhugaverðri vinnu með rými og hugmyndir.
Listamenn: Birta Guðjónsdóttir,Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Sigurður Guðjónsson, Daníel Björnsson, Jóhannes Atli Hinriksson, Karlotta Blöndal, Ingirafn Steinarsson og Gunnhildur Hauksdóttir.
Texti á íslensku og ensku. 66. bls. Útgáfa Listasafn Reykjavíkur 2008.




Erró Í tímaröð


Erró - Í Tímaröð líf hans og list
Í þessari bók gerir Danielle Kvaran í máli og myndum ítarlega grein fyrir listamannsferli Errós í tímaröð, æviatriðum hans, einstökum verkum og sýningum, þroska hans og þróun. Hún aflar fanga í bréfum og skjölum, í blöðum og tímaritum sem birt hafa gagnrýni og greinar um listamanninn og verk hans og jafnframt með viðtölum við Erró sjálfan, vini hans og samferðamenn. Íslensk þýðing. Sigurður Pálsson
Útgáfa: Mál og Menning og Listasafn Reykjavíkur 2008



MikinesMikines
Þessi bók er gefin út í tilefni af yfirlitssýningu Samuel Joensen Mikines í Listasafni Reykjavíkur Kjarvalsstöðum. Í bókinni eru litprentaðar myndir af verkum á sýningunni ásamt inngangi eftir Hafþór Yngvason safnstjóra og greinum um listamanninn eftir Bárður Jákupsson og Aðalstein Ingólfsson
Útgáfa: Listasafn Reykjavíkur 2008





Sigurður GuðmundssonSigurður Guðmundsson
Þessi bók er gefin út í tilefni af sýningu Sigurðar MÁLLAUSIR KJARNAR / MUTES
í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi. Í bókinni eru litprentaðar myndir af verkum sýningarinnar
ásamt inngangi eftir Hafþór Yngvason safnstjóra.
Útgáfa: Forlagið og Listasafn Reykjavíkur 2008

Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00