Listasafn Reykjavíkur

Frum - nútímatónlistarhátíð

Frum

frum- er nútímatónlistarhátíð sem haldin er á Kjarvalsstöðum í júní ár hvert.
Megináhersla hátíðarinnar er að kynna meistaraverk nútímatónbókmenntanna fyrir tónlistarunnendum, verk sem þegar hafa sett mark sitt á tónlistarsöguna en þó eru sjaldheyrð í tónleikahúsum Reykjavíkur. Auk þessa eru alla jafnan flutt tónverk eftir yngri kynslóð tónskálda, íslenskra sem og erlendra. Hátíðin er því kjörið tækifæri til að kynnast alþjóðlegum straumum og stefnum í nútímatónlist.
Kammerhópurinn adapter stendur að frum- hátíðinni í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur. Sýningar Listasafnsins skapa skemmtilega umgjörð fyrir tónlistina og gefa áheyrendum tækifæri á að upplifa nýja tónlist í víðara samhengi.
www.frum-festival.com

frum- 2009 Efnisskrá

Lau | 6. Júní 2009 | 20:00

"Trompe l'oreille"
Einleiksverk og dúó  fyrir flautu og slagverk

Henze | Sciarrino | Kondo | Ambrosini

adapter
Kristjana Helgadóttir, flauta
Matthias Engler, slagverk

Sun | 7. Júní 2009 | 20:00

“Why was I born surrounded by mirrors?”
Tónlist eftir George Crumb við texta Federico Garcia Lorca
Madrigals | Book I-IV
Federicos's little songs for children

adapter
Þóra Einarsdóttir , sópran
Kristjana Helgadóttir, flauta
Gunnhildur Einardsóttir, harpa
Borgar Magnason, kontrabassi
Matthias Engler, slagverk
 

Kammerhópurinn adapter

adapter hefur starfað frá árinu 2004. Hópurinn er sveigjanlegur að stærð og hann skipa alla jafnan íslenskir og þýskir hljóðfæraleikarar. adapter sérhæfir sig í flutningi samtímatónlistar og vinnur mjög náið með ungum tónskáldum. Nú þegar hefur adapter frumflutt yfir 60 verk. Auk þess leggur adapteráherslu á að flytja og kynna svokallað "standard repertoire" tuttugustu aldarinnar en það eru verk sem þegar eru talin til meistaraverka samtímatónbókmenntanna. adapter heldur nútímatónlistarhátíðina frum- árlega í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur.

Í samstarfi við Klangnetz e.V. sem er félag ungra tónskálda í Berlín sér adapter um tónleikaröðina "Klangnetz" þar í borg. adapter sér einnig um tónleikaröðina  "Seitsemän" í Helsinki sem fram fer á eyjunni Suomenlinna og eru fernir tónleikar haldnir þar yfir veturinn.

adapter hefur haldið tónleika í Þýskalandi, Sviss, Hollandi, Tyrklandi, Finnlandi og á Íslandi, sem og leikið á ýmsum hátíðum, en þar má nefna Crossing Border, Maerz Musik, Kottbuser Mukiskherbst, Global Interplay og Myrka Músíkdaga. Samstarf við önnur listform hefur hefur verið mikilvægur þáttur í starfi adapter en haldnir hafa verið tónleikar í samstarfi við myndlistarmenn, dansara og rithöfunda. www.ensemble-adapter.de

Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00