Ásmundur Sveinsson
æviágrip
An upcoming exhibition
1893 Ásmundur Sveinsson fæddur 20. maí 1893 að Kolsstöðum, Dalasýslu.
1915 Hefur tréskurðarnám í Reykjavík.
1919 Hefur myndlistarnám í Kaupmannahöfn.
1920 Hefur nám við listakademíuna í Stokkhólmi.
1924 Kvænist Gunnfríði Jónsdóttur.
1925 Vinnur skreytingar í sali nýja hljómleikahússins í Stokkhólmi.
1926 Lýkur námi og fer til Parísar.
1928 Ferðast um Ítalíu og Grikkland.
Sýnir á Haustsýningunni í París.
1929 Sýnir á vorsýningunni í París.
Flytur til Íslands.
1930 Heldur fyrstu einkasýningu sína á Íslandi.
1931 Fær vinnuaðstöðu á Laugarnesspítala.
Lágmyndir á barnaskóla Austurbæjar.
Piltur og stúlka.
1933 Byggir sér íbúðarhús og vinnustofu við Freyjugötu.
1935 Ferð til Parísar, London og Brussel.
1936 Hefur vetursetu í Kaupmannahöfn og leggur drög að helstu verkum áratugarins. Myndefnið er samfélagslegt en í Járnsmiðnum birtist í tækniáhugi hans í fyrsta sinn.
1939 Verk Ásmundar á heimssýningunni í New York. Setur upp höggmyndir í garði hússins við Freyjugötu.
1942 Byggir Kúluna.
1943 Ásmundur flytur í Kúluna með seinni konu sinni, Ingrid Sveinsson.
1944 Gerir verkið Helreiðin.
Bókmenntalegar tilvísanir verða áberandi í verkum hans.
1945 Gróður jarðar.
Myndverk í Laugarnesskóla.
1946 Byggir vinnustofu við hús sitt og sækir fyrirmyndina til Egypskrar byggingarlistar.
1948 Miklar blaðadeilur spinnast vegna áforma um að staðsetja Vatnsberann í borgarlandinu.
1949 Sýnir á samnorrænni myndlistarsýningu í Den Frie í Kaupmannahöfn.
1950 Vinnur skreytingar úr járni fyrir afgreiðslusal Landsbankans á Akureyri.
Tónar hafsins, Lífsblossinn og Leikur að þangi.
1954 Verk Ásmundar, Hamarinn, framlag Íslands til byggingar SÞ í New York.
1955 Tekur að vinna með járn.
Áhugi hans á tækniframförum birtist aftur í verkinu Rafmagnið.
1957 Vinnur verkin Geimdreki I og II.
1959 Bogaskemman opnuð með sýningu á hvítasunnu.
1961 Sýnir á norrænni yfirlitssýningu í Listasafni Íslands.
1963 Ítarleg blaðaumfjöllun um Ásmund í tilefni sjötugsafmælis hans.
1966 Gerir Fljúgandi framtíð.
1967 Verkið Öldugjálfur við Norræna skálann á heimssýningunni í Montreal.
Gerir verkið Geimþrá.
1968 Tunglfarar heimsækja Ásmund.
1973 Yfirlitssýning á verkum Ásmundar í Listasafni Íslands.
1974 Ásmundur heldur áfram tilraunum í myndlist með steinum sínum. Vatnsberinn verður merki kvennafrídags, 24. október.
1982 Ásmundur Sveinsson lést 9. desember.
1983 Opnun Ásmundarsafns.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.43.2012