2011
MYNDBÖND 2012 - MYNDBÖND 2010
DRAWING AS A PERFORMATIVE PRACTICE -
JAN PHILIPP FRUEHSORGE
Í tengslum við sýninguna Hraðari og hægari línur fjallaði Jan Phillip Fruehsorge ásamt sýningarstjóranum Birtu Guðjónsdóttur um teikninguna í samtímamyndlist í alþjóðlegu og listsögulegu samhengi.
DRAWING AS A PERFORMATIVE PRACTICE - JAN PHILIPP FRUEHSORGE (37:09)
20/20
Málþing: Safnfræðsla 1991 - 2031
Kjarvalsstaðir, sunnudag 20. nóv 2011
Haldið í tilefni 20 ára starfsafmælis fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur
Fræðsluhlutverk safna er afar mikilvægt og í því felst áskorun um að koma til móts við ólíkar þarfir safngesta. Fræðslufólk safna ber hag almennings fyrir brjósti og reynir að gera viðfangsefni safnanna aðgengileg öllum. Listasafn Reykjavíkur hefur sinnt menntunarhlutverki sínu í rúm 20 ár og af því tilefni var efnt til málþingsins 20/20, haldið í samvinnu við Rannsóknastofu í safnafræðum við Háskóla Íslands.
20/20 - FYRRI HLUTI (1:15:16)
Menntunarhlutverk Listasafns Reykjavíkur: Máttleysi og/eða möguleikar.
AlmaDís Kristinsdóttir verkefnastjóri fræðslu Listasafns Reykjavíkur rýnir í 20 ára fræðslustarf Listasafns Reykjavíkur byggt á viðtölum og gögnum frá 1991–2011.
Safnfræðsla: undirbúningur og eftirfylgni
Bergsveinn Þórsson, meistaranemi í safnafræði og safnkennari fjallar um Kennslupakka Listasafns Reykjavíkur, nýsköpunarverkefni unnið árið 2010 og gefið út árið 2011.
Að vera í sambandi við annað fólk – Nýjar leiðir í miðlun.
Soffía Karlsdóttir, markaðs- og kynningastjóri Listasafns Reykjavíkur fjallar um gildi samfélagsmiðla og rafrænnar miðlunar í fræðslustarfi safna.
20/20 – SEINNI HLUTI (59:41)
Að horfa er skapandi athöfn – sjónrænir þættir í íslensku landslagi.
Helena Guttormsdóttir myndlistarmaður og kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands fjallar um að raungera þekkingu með reynslu og mikilvægi þess að ferlar í listum verði sýnilegri og virkjaðir annars staðar en í listheiminum.
Á mörkum myndlistar og fræðslu - Holle rasse hía: Afvegaleiðsögn
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir verkefnastjóri dagskrár Listasafns Reykjavíkur og myndlistarmennirnir Anna Hrund Másdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir kynna 20 mínútna leiðsagnir á mörkum myndlistar og fræðslu.
Menntabúrið 2031
Sigurjón B. Hafsteinsson, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands ræðir um framtíðarsýn
í fræðslumálum safna, hvernig lítur safnfræðsla út árið 2031?
NÝ LIST VERÐUR TIL
GESTASPJALL
Ný list verður til – sýningarstjóraspjall : Jón Proppé
(16:18)
Ný list verður til – tónlistin: Bjarki Sveinbjörnsson
(29:01)
Ný list verður til – leikhúsið: Erlingur Gíslason og Vigdís Finnbogadóttir
(56:36)
Ný list verður til – bókmenntirnar: Dagný Kristjánsdóttir
(50:12)
JAÐARBER // TÓNLISTARGJÖRNINGAR
Piano Piece No. 1 by Tomas Schmit (1962)
(5:54)
Incidental Music by George Brecht (ártal ekki vitað)
(4:30)
Ben Vautier: Piano Concerto No. 2 for Paik (1965)
(2:29)
Takehisa Kosugi: Distance for Piano (To David Tudor) (1965)
(3:59)
Pauline Oliveros: The Inner – Outer: Sound Matrix
(7:30)
John Cage: And the Earth Shall Bear Again
(3:11)
Flutt af Tinnu Þorsteinsdóttur og Fengjastrúti
JAÐARBER // TÓNLEIKAR - TILRAUNAMENNSKA SJÖUNDA ÁRATUGARINS
EFNISSKRÁ:
Leifur Þórarinsson: Piece (1966)
(4:33)
Yoko Ono: Lighting Piece (1955)
(1:08)
Þorsteinn Hauksson: Humma? (1972)
(5:07)
Yoko Ono: Toilet Piece (1971)
(0:52)
Þorkell Sigurbjörnsson: Fípur (1971)
(7:36)
Nam June Paik: Dragging Suite
(Ártal ekki vitað)
Dieter Roth: Der Akkorden Fluch (1981-82)
(1:03)
Nam June Paik: Dragging Suite (ártal ekki vitað)
(1:29)
Nam June Paik: Dragging Suite
(1:48)
Magnús Blöndal Jóhannsson: Frostrósir (1970)
mynd- og hljóðverk með ballett eftir Ingibjörgu Björnsdóttur - (engin upptaka).
Flytjendur: Freyja Gunnlaugsdóttir, klarinett, Sigurgeir Agnarsson, selló, Tinna Þorsteinsdóttir, píanó, Guðmundur Steinn Gunnarsson, tónsmiður ásamt Heiðu Árnadóttur, söngkonu, Páli Ivan Pálssyni, tónsmið og Jesper Pedersen, tónsmið. www.jadarber.is
KRÍTÍK OG KENNINGARSMÍÐ: ÍSLENSK SAMTÍMALISTFRÆÐI
Sunnudag 4. september 2011
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
Hvergi hefur verið að finna samantekt eða yfirlit yfir störf og hugmyndir fræðimanna sem hafa helgað sig greiningu myndlistar. Þá hafa ýmsir listamenn lagt sig eftir fræðilegum skrifum eða skrifum sem hafa sérstakt gildi við greiningu á hugmyndalegri þróun myndlistar og samhengi hennar. Allt er í brotum og vart neinum fært að ná yfirsýn yfir sviðið sem ekki hefur sjálfur verið þátttakandi þar um langt skeið og fylgst vel með.
Árið 2011 var hrint af stað rannsóknarverkefni til að safna og greina skrif fræðimanna og listamanna um íslenska myndlist. Að verkefninu standa Listaháskóli Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands, Nýlistasafnið, listfræði við Háskóla Íslands og Listafræðafélagið. Sex háskólanemar hafa unnið að rannsókninni með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og á málþinginu munu þeir, ásamt umsjónarmönnum rannsóknarinnar, kynna verkefnið í örstuttum erindum, árangur vinnunnar og framtíðaráform um úrvinnslu þess.
1. hluti (28:19)
KYNNINGARORÐ
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir, fagstjóri fræðigreina við myndlistardeild Listaháskóla Íslands
UMFANG OG MARKMIÐ RANNSÓKNARINNAR
Jón Proppé, listheimspekingur
2. hluti (29:01)
MIKILVÆGI MIKILVÆGI FRÆÐINNAR!
Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt, myndlistarmaður og nemi í listfræði við HÍ
ÓLGandi FRAMLAG TIL LISTUMRÆÐU
Steinunn Lilja Emilsdóttir, BA í guðfræði og nemi í myndlist við LHÍ
AÐ FANGA AÐALSTEIN
Bergdís Hörn Guðvarðardóttir, myndlistarmaður, BEd í kennslufræði og nemi í listfræði við HÍ
UPPGEFIÐ
Bryndís Björnsdóttir, BA í listfræði, myndlistarmaður og grasrót 2011
LISTAMANNASKRIF (féll niður)
Hildur Rut Halblaub, nemi í listfræði við HÍ
TÍMAVÉLIN
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, nemi í myndlist við LHÍ
3. hluti (55:54)
OPNAR SAMRÆÐUR
Unnar Örn J. Auðarson, myndlistarmaður, stjórnar opnum samræðum að erindum loknum.
KATRIN SIGURDARDOTTIR AT THE MET
Katrín Sigurðardóttir & Anne L. Strauss,
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús,
8. september 2011.
Katrín Sigurðardóttir, myndlistarmaður og Anne L. Strauss, sýningarstjóri við Metropolitan safnið í New York ræddu um sýninguna Katrin Sigurdardottir at the Met, sem sett var upp á Metropolitan safninu í New York árið 2010.
Sýningin, samanstóð af tveim innsetningum sem unnar voru sérstaklega fyrir safnið og báru yfirskriftina Boiseries. Katrín er þekkt fyrir endurgerð og túlkun sína á stöðum bæði raunverulegum og ímynduðum, en innsetningarnar voru endurgerðir í fullri stærð á tveimur frönskum herbergjum frá 18. öld sem varðveittar eru í Metropolitan safninu. Einu frá Hôtel de Crillon (1777-80) á Place de la Concorde í París og öðru frá Hôtel de Cabris (ca. 1774) frá Grasse í Provence. Sýningin var skipuögð af Anne L. Strauss og tilheyrir seríu einkasýninga samtímalistamanna á borð við Tony Oursler (2005), Kara Walker (2006), Neo Rauch (2007), Tara Donovan (2008), Raqib Shaw (2008-2009), og Pablo Bronstein (2009-2010).
Katrín Sigurðardóttir (f.1967) er búsett bæði í Reykjavík og New York. Hún er m.a. með MFA gráðu frá Rutgers University, New Brunswik, NJ, BFA gráðu frá San Fransisco Art Institute, SF, CA og próf frá fjöltæknideild Myndlistar-og handíðaskóla Íslands. Katrín hefur sýnt víða í listasöfnum og galleríum m.a. í S.M.A.K. Museum of Contemporary Art, Ghent (2009), í P.S.1 Contemporary Art Center, New York (2006), í The Renaissance Society, Chicago (2005), Sala Siqueiro í Mexico Citu (2005), og Fondazione Sandretto í Turin (2004).
Anne L. Strauss og Katrín Sigurðardóttir kynntu sýninguna í stuttum erindum. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur stýrði umræðum.
Unnið í samstarfi við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.
Katrin Sigurdardottir at the Met /// Katrín Sigurðardóttir & Anne L. Strauss (01:14:56)
MÁLÞING - ÖNNUR SJÓNARMIÐ
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús,
helgina 13. - 14. ágúst.
Málþing sem haldið var í tengslum við sýninguna Sjónarmið – Á mótum myndlistar og heimspeki. Lagt var uppi með að opna umræður fyrir ólíkum sjónarhornum með erindum fræði- og listamanna.
Á málþinginu flutti Nicolas Bourriaud, rithöfundur og fyrrum safnstjóri Palais de Tokyo í París, erindi ásamt því að taka þátt í umræðum þar sem skoðuð voru tengsl heimspeki og myndlistar og spurningum velt upp um skörun þessara tveggja greina. Nicolas Bourriaud hefur getið sér gott orð sem sýningarstjóri og listgagnrýnandi, en kunnastur er hann fyrir hugmyndir sínar um venslalist „relational art“.
Þátttakendur í málþinginu voru auk Nicolas Bourriaud, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir listheimspekingur, Brynhildur Sigurðardóttir heimspekikennari, Egill Arnarson heimspekingur, Gunnar Harðarson heimspekingur, Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Jón Proppé listheimspekingur, Oddný Eir Ævarsdóttir heimspekingur og rithöfundur, Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur.
Málþingið fór fram á ensku.
LAUGARDAG 13. ágúst
Fyrirlestur: Nicolas Bourriaud
(47:37)
Umræður: Nicolas Bourriaud, Aðalheiður L. Guðmundsdóttir, Hafþór Yngvason og Oddný Eir Ævarsdóttir (55:37)
SUNNUDAG 14. ágúst
Sjónarmið – innleiðing Jón Proppé, listheimspekingur
(13:48)
Önnur Sjónarmið /// Brynhildur Sigurðardóttir, heimspekikennari
(17:17)
Önnur Sjónarmið /// Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur (24:15)
Önnur Sjónarmið /// Egill Arnarson, heimspekingur (18:37)
Gunnar Harðarson leiðir pallborðsumræður (23:17)
Unnið í samstarfi við Sendiráð Frakklands á Íslandi.
Prenta