Panta safnfræðslu og leiðsögn
An upcoming exhibitionFyrir öll skólastigPantanir fyrir skólahópa Heimsókn á Listasafn Reykjavíkur býður upp á margvíslega möguleika til upplifunar, fræðslu og náms. Starfsemi Listasafns Reykjavíkur fer fram á þremur stöðum innan borgarinnar: Kjarvalsstöðum við Flókagötu, Ásmundarsafni við Sigtún og Hafnarhúsi við Tryggvagötu. Nánari upplýsingar um hvert skólastig má finna undir Fræðsla og viðburðir -- fyrir skóla. Panta safnfræðslu fyrir skólahóp Myndlist á ferð og flugiFlökkusýningar fyrir grunnskóla Reykjavíkur Grunnskólum Reykjavíkur stendur til boða að fá tvær flökkusýningar til láns í skólann í 2–3 vikur í senn ásamt vönduðum verkefnum (fræðslupakka) og kynningu á mögulegri notkun sýninga og verkefna. Fræðslupakkarnir eru unnir af kennurum með bakgrunn í myndlist og listfræði og verkefnin tengd námskrám. Panta Flökkusýningu Fyrir almenningSérpantanir fyrir hópa Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa í öll safnhús Listasafns Reykjavíkur. Leiðsögn er, eftir föngum sniðin, að óskum hvers hóps. Verð er kr. 24.000. Á Kjarvalsstöðum er hægt að semja sérstaklega um veitingar. Panta leiðsögn fyrir almennan hóp
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.48.2012
|