Listasafn Islands

Starf í boði

An upcoming exhibition

UPPLÝSINGAMIÐLUN

Listasafn Reykjavíkur óskar eftir að ráða deildarfulltrúa við kynningar- og markaðsdeild safnsins. Um er að ræða 50% starf, sem getur verið sveigjanlegt að einhverju leyti. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf upp úr miðjum júlí 2011.
Starfið felst í miðlun upplýsinga í gegnum heimasíðu, fréttabréf og samfélagsmiðla (Facebook, Twitter, Flickr, YouTube, Vimeo og Foursquare) safnsins. Einnig er gert ráð fyrir að starfsmaður þrói og leiti nýrra leiða í rafrænni miðlun á sýningum og viðburðum safnsins og starfi að öðrum þeim verkefnum sem heyra undir deildina.

Hæfniskröfur:
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
Þekking á vefumsjónarkerfi til að uppfæra og breyta heimasíðu.
Þekking á HTML forritunarmáli.
Þekking á virkni og notkun helstu samfélagsmiðla.
Þekking á Photoshop eða GIMP
Mjög góð íslensku og ensku kunnátta.

Launakjör:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Umsóknarfrestur er til 20. júní.

Vinsamlegast sækið um hér.

Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri markaðs- og kynningarmála hjá Listasafni Reykjavíkur í síma 590-1200.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.52.2012