Án áfangastaðar - Ráðstefnan

Practicing Nature-Based Tourism
5.-6. febrúar 2011, fjölnotarými Hafnarhúss

Smelltu hér til að hlusta á fyrirlestra úr ráðstefnunni á Vimeo-síðu Listasafns Reykjavíkur.

Practicing Nature-Based Tourism er alþjóðleg, þverfagleg ráðstefna tileinkuð fræðslu um náttúrutengda ferðamennsku og umræðu um Ísland sem áfangastað ferðamanna. Hún er hugsuð sem tækifæri fyrir innlenda og erlenda rannsakendur á ýmsum sviðum náttúrutengdrar ferðamennsku að koma niðurstöðum sínum á framfæri til samfélagsins.

Á mælendaskrá verða ferðamálafræðingar, landfræðingar, sagnfræðingar, félagsfræðingar, umhverfisfræðingar, mannfræðingar, listamenn, arkítektar og markaðsfólk úr ferðageiranum. Á eftir þéttskipaðri fræðsludagskrá verða pallborðsumræður, þar sem rætt verður um þær áskoranir sem blasa við ferðamannalandinu Íslandi – hvar það stendur og hvert það stefnir nú á tímum aukins ferðamannastraums og álags. Pallborðið verður skipað helstu ráðamönnum íslensku ferðaþjónustunnar, ásamt fagfólki í greininni og sérfræðingum á þessu sviði. Þau munu reifa helstu áskoranir íslenskrar ferðaþjónustu frá bæjardyrum síns fags.

Fræðsludagskráin fer fram á ensku þar sem frummælendur eru hvattir til að tala í almennu máli en umræðufundurinn á íslensku. Í kjölfarið verður gefin út sérútgáfa fræðiritsins Landabréfsins, tímarits Félags landfræðinga, með völdum erindum frá ráðstefnunni. Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru Lucy R. Lippard, Galisteo, Nýju-Mexíkó, rithöfundur, sýningarstjóri og samfélagsrýnir, dr. Tim Edensor, landfræðingur hjá Manchester Metropolitan University og Päivi Lappalainen, sérfræðingur í ferðamálafræðum frá Finnlandi.

Ekki er lengur tekið á móti skráningu þar sem fullbókað er á ráðstefnuna. Upptökur af fyrirlestrum ráðstefnunnar birtast von bráðar á síðu safnsins.


Dagskrá ráðstefnunnar


Höfundar verkefnisins Án áfangastaðar eru Markús Þór Andrésson sýningarstjóri og Gunnþóra Ólafsdóttir landfræðingur, sem vinna verkið í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur, ReykjavíkurAkademíuna og Félag landfræðinga. Verkefnið er styrkt af Norræna menningarsjóðnum, Mennta -og menningarmálaráðuneytinu, Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Ferðamálastofu, Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, Iaspis - styrkúthlutunarnefnd til sænskra listamanna á alþjóðavettvangi, Esja Travel og Hótel Holt.

Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00