Listasafn Islands

An upcoming exhibition

Stafrænni endurgerð á samtímalist hleypt af stokkunum með glæsibrag

Verkefninu Stafræn endurgerð á samtímalist (DCA: Digitising Contemporary Art), sem unnið er fyrir menningarvefgáttina Europeana, verður hleypt af stokkunum í dag, 25. janúar 2011.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Samtök um stafræna endurgerð á samtímalist, sem í eru 25 samstarfsstofnanir frá 10 aðildarríkjum Evrópusambandsins og 2 aukaaðildarríkjum, Króatíu og Íslandi, hleypa í dag opinberlega af stokkunum verkefninu Stafræn endurgerð á samtímalist, en með því mun aukast til muna aðgengi að samtímalist gegnum vefgáttina Europeana, sem er í fremstu röð hvað varðar netaðgang að menningararfi Evrópu.

Á næstu 30 mánuðum munu yfir tuttugu söfn og listastofnanir setja um það bil 27.000 samtímalistaverk og 2000 heimildaskjöl sem þeim tengjast á stafrænt form og gera þau aðgengileg gegnum vefgáttina Europeana. Með fjárstyrk Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í anda Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar og Upplýsingatækniáætlunar Evrópusambandsins, og með fulltingi fyrrnefndra 25 samstarfsstofnana, er að því stefnt með Stafrænni endurgerð á samtímalistarverkefninu að skapa framúrskarandi stafrænar endurgerðir listaverka og tryggja varðveislu þessara endurgerða til langframa og aðgengi að þeim og tilheyrandi gögnum. Til að stuðla að frekari verkefnum á þessu sviði verða einnig gefnar út leiðbeiningar og heimildaefni um fyrirmyndarverklag við að setja samtímalist á stafrænt form.

Í júlí árið 2013 verða lýsigögnin um hin stafrænu verk kortlögð, aukin, sett í samhengi og sameinuð Europeana-safninu. Stafræn endurgerð á samtímalist verkefnið mun einnig skila Europeana-safninu stafrænum smámyndum af listaverkum og hlekkjum að hágæða endurgerðum þeirra. Samstarfsstofnanirnar geta svo í framhaldinu gert þetta stafræna efni aðgengilegt í gegnum sínar eigin netsíður og aðrar eftir atvikum. Þetta mun greiða fyrir aðgengi almennings á netinu að (hluta af) samtímalistasöfnum samstarfsstofnananna og stuðla að jákvæðri reynslu fólks af netinu. Um leið munu hinar stafrænu endurgerðir og lýsigögnin gera sitt gagn hvað snertir varðveislu listaverkanna og tilheyrandi heimildaskjala.

Samtímalistarverkefninu er ætlað að auka sjónrænt aðgengi að samtímalist sem þýðingarmiklu tjáningarformi og ómetanlegri stoð í menningarlífi Evrópu, og ýta undir áhuga almennings með áberandi aðgengileika samtímalistar gegnum Europeana-vefgáttina.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gerði sér ljósa þörfina fyrir samhæfðan og greiðan netaðgang að stafrænum hirslum evrópskrar menningar. Europeana gerir fólki kleift að kanna stafrænar gersemar evrópskra listasafna, bókasafna, skjalasafna og tón- og myndsafna. Þar er nú þegar að finna 14,6 milljónir verka og frá því að vefgáttin var opnuð í nóvember árið 2008 hafa milljónir manna notað hana. Þessar tölur endurspegla þann mikla áhuga sem er á netaðgangi að menningararfi Evrópu. Fyrir menningarvefgátt á borð við Europeana, sem stefnir að því að veita netaðgang að stórum hluta evrópskrar menningar, er brýnt að hafa samtímalist í sínum ranni. Í þeim efnum mun Stafræn endurgerð á samtímalist verkefnið leggja mikilvægt lóð á vogarskálarnar.

Samstarfsstofnanir verkefnisins Starfæn endurgerð á samtímalist á Íslandi eru Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur (www.europeana.eu/portal)

Heimasíða DCA

 



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 21.53.2012