2010
MYNDBÖND 2012 - MYNDBÖND 2011
MÁLÞING: SÖFNUNAR- OG INNKAUPASTEFNA LISTASAFNS REYKJAVÍKUR
KJARVALSSTAÐIR
5. DESEMBER 2010
Í tengslum við sýninguna "Ný aðföng 2006 - 2010" boðaði Listasafn Reykjavíkur til málþings á Kjarvalsstöðum 5. desember 2010. Þar var innkaupastefna Listasafns Reykjavíkur krufin og rætt um listasöfn og listaverkasöfnun frá ýmsum hliðum.
(fyrri hluti)
(seinni hluti)
MÁLÞING: ALTERNATIVE NORTH
HAFNARHÚS
5. - 7. NÓVEMBER 2010
Virtir safnstjórar, listgagnrýnendur og sýningarstjórar frá Norðurlöndum komu saman á málþingi í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi helgina 5. – 7. nóvember 2010 til að ræða stöðu samtímalistar á Norðurlöndum.
Alternative North
MYNDLISTARÞING 2010
Þann 19. apríl 2010 var áratugur liðinn frá því að Listasafn Reykjavíkur var opnað í Hafnarhúsinu. Af því tilefni var efnt til myndlistarþings með þátttöku á annað hundrað aðila.
Á málþingið boðaði Listasafn Reykjavíkur safnafólk, listfræðinga, stjórnmála- og embættismenn, sem unnu saman í hópum. Þátttakendum var ætlað að ræða málefni er varða stöðu myndlistar á Íslandi, m.a. söfn, sýningarými, stofnanalegt umhverfi og aðstöðu og hagsmunamál myndlistarmanna. Þingmönnum er ætlað að fara yfir þróunina síðasta áratuginn, ræða núverandi stöðu og velta fyrir sér framtíðarhorfum.
Í lok þingsins var dregin saman niðurstaða allra vinnuhópanna.
Hér má nálgast öll þau myndbönd sem tekin voru upp meðan á þinginu stóð.
Fyrirlesarar:
Inngangsorð - Jón Proppé
Hagsmunamál myndlistarmanna - Gerla
Menntun og sýningarhald - Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Lög og hagræn málefni - Harpa Þórsdóttir
Myndlist í opinberu rými - Pétur H. Ármannsson
Myndlistarrými í borg - Sigrún Birgisdóttir
Opinber umfjöllun um myndlist - Hulda Stefánsdóttir
Útgáfa og myndlist - Jón Proppé
Erlendir straumar - Markús Þór Andrésson
Myndlistararfleið - Einar Garibaldi Eiríksson
Möguleikar til sýningarhalds - Anna Líndal
Íslensk myndlist á erlendum vettvangi - Rúrí
Myndlistarviðburðir, verðlaun og hátíðir - Erling Klingenberg
Menningarstefna og hlutverk hins opinbera - Gunnar J. Árnason
Óháð sýningarými listamanna - Þóra Þórisdóttir
Einkarekin gallerí - Hanna Styrmisdóttir
Að safna myndlist - Inga Jónsdóttir
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 25.05.2013
|