Umræðuþræðir

Umræðuþræðir er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og Listaháskóla Íslands. Lagt er uppi með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður í fyrirlestraröð ár hvert. Þátttakendur í verkefninu eru virtir sýningarstjórar, fræði- og listamenn sem eiga merkan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi. Erindi fyrirlesara tengjast á þematískan hátt með vísunum í sýningar sem standa yfir hverju sinni.

Fyrirlestrar fara fram á ensku og eru öllum opnir án endurgjalds. Aðalstyrktaraðili Umræðuþráða er Bandaríska sendiráðið á Íslandi ásamt stuðningi frá Franska sendiráðinu á Íslandi. 

 

DAGSKRÁ: Vor 2013

 
UMRÆÐUÞRÆÐIR: Miwon Kwon
Fimmtudag 21. mars kl. 20
Hafnarhús - Umræðuþræðir 2013
 
Miwon Kwon, sýningarstjóri flytur erindi í fyrirlestrarseríunni Umræðuþræðir í tengslum við sýningu Robert Smithson í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Kwon hefur sýningarstýrt fjölda sýninga, má þar sérstaklega nefna “Ends of the Earth: Land Art to 1974,” í samvinnu við Philipp Kaiser, Museum of Contemporary Art in Los Angeles (2012), Haus der Kunst, Münich, Germany (2013). Í samvinnu við Listaháskóla Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og Íslandsstofu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Ókeypis aðgangur.
 
 
UMRÆÐUÞRÆÐIR: Ann Reynolds
Fimmtudag 4. apríl kl. 20
Hafnarhús - Umræðuþræðir 2013
 
Ann Reynolds, listfræðingur og prófessor við University of Texas, Austin flytur erindi í fyrirlestrarseríunni Umræðuþræðir í tengslum við sýningu Robert Smithson í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Í samvinnu við Listaháskóla Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og Bandaríska sendiráðið á Íslandi.  Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Ókeypis aðgangur.
 
 
UMRÆÐUÞRÆÐIR: Charlotte Laubard
Fimmtudag 11. apríl kl. 20
Hafnarhús - Umræðuþræðir 2013
 
Charlotte Laubard, sýningarstjóri og forstöðumaður CAPC Museum of Contemporary Art Bordeaux, Frakklandi flytur erindi í fyrirlestrarseríunni Umræðuþræðir. Í samvinnu við Listaháskóla Íslands, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, Franska Sendiráðið á Íslandi og Alliance Française. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Ókeypis aðgangur.
 

 

 



 Söfnin


 

 
 

Fyrri fyrirlestrar: Haust 2012

Þátttakendur í Umræðuþráðum á haustmisseri 2012 voru Didier Semin og David A. Ross. Erindi þeirra tóku á verklagi listamanna og notkun þeirra á ólíkum listmiðlum.  

David A. Ross - Um þróun skjálistar í samhengi safnsins
Fimmtudag 15. nóvember 2012
Hafnarhús - Umræðuþræðir
 
David A. Ross er prófessor við School of Visual Art í New York og fyrrum safnstjóri San Francisco Museum of Modern Art, Whitney Museum of American Art og Boston Institute of Contemporary Art. Hann hefur einnig unnið sem sýningarstjóri við University Art Museum, Berkeley, Long Beach Museum of Art og Everson Museum of Art, ásamt því að sýningarstýra fjölda sýninga á alþjóðlegum vettvangi. Ross hefur sérstaklega fengist við skjálist (video art) og nýmiðla í skrifum, skipulagningu sýninga og t.a.m. sýningarstýrt yfirlitssýningu á verkum Bill Viola, Whitney Museum of American Art (ferðasýning).


Didier Semin - Teiknimyndasagan frá Duchamp til Perjovschi
Fimmtudag 27. september 2012
Hafnarhús - Umræðuþræðir

Didier Semin er franskur listfræðingur og prófessor við École nationale supérieure des Beaux-Arts, París (frá 1998) og hefur áður starfað sem sýningarstjóri hjá Musée de l'Abbaye Sainte-Croix, Musée d'art moderne de la Ville de Paris og Musée national d'art moderne. Hann hefur skipulagt ýmsar yfirlits- og þematengdar sýningar m.a. á verkum Kurt  Schwitters, og L'Empreinte (Imprint), Centre Georges Pompidou í samvinnu við franska heimspekinginn Georges Didi-Huberman. Semin hefur sérstaklega fengist við teikninguna sem listmiðil í samtímanum.

  

Fyrri fyrirlestrar: Vor 2012

Þátttakendur í Umræðuþráðum á vormisseri 2012 voru Eleanor Heartney og Claire Bishop. Erindi þeirra tóku á verklagi listamannsins, sýningarumhverfi og aðstæðum með vísun í sýningu Santiagos Sierra í Hafnarhúsinu. Hugmyndir um tilfærslur í álagi og ábyrgð, í samvinnu eða sem pólitísk eða samfélagsleg ádeila eru þræðir sem teknir voru upp.
 
 
Claire Bishop – Þátttökugjörningar
Miðvikudag 21.mars 2012 
Hafnarhús – Umræðuþræðir

Claire Bishop er breskur listfræðingur og myndlistargagnrýnandi sem býr og starfar í New York. Hún er prófessor í samtímalistfræðum og sýningarstjórn við Listasögudeild CUNY Graduate Center, New York og hefur áður fengist við kennslu við Royal College of Art, London og Warwick University. Bishop hefur sinnt skrifum fyrir fjölda alþjóðlegra listtímarita á borð við Artforum, Flash Art, og October. Greinar Antagonism and Relational Aesthetics (October, 2004) og The Social Turn: Collaboration and its Discontents (Artforum, 2006) eru með áhrifameiri skrifum síðari ára sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála og endurútgefnar. Einnig má nefna útgáfur á borð við Participation (MIT Press, 2006) og Installation Art: A Critical History (2005). Bishop hefur einnig fengist við sýningarstjórn athyglisverðra sýninga má þar helst nefna Double Agent (ICA, London; Mead Gallery, Warwick Arts Centre; og Baltic Centre for Contemporary Art, Gateshead). 
 
 
 
 
Eleanor Heartney – Myndlist og vinnuframlag
Fimmtudag 26. janúar 2012
Hafnarhús – Umræðuþræðir

 
Eleanor Heartney myndlistargagnrýnandi og fræðimaður, hefur fengist við skrif fyrir fjölda alþjóðlegra listtímarita á borð við Art in America, Artpress, Artnews, Art and Auction, The New Art Examiner, ásamt Washington Post og New York Times. Meðal útgefinna fræðibóka má nefna Critical Condition: American Culture at the Crossroads (Cambridge University Press, 1997); Postmodernism (Cambridge University Press, 2001); Postmodern Heretics: The Catholic Imagination in Contemporary Art (Midmarch Arts Press, 2004); Defending Complexity: Art, Politics and the New World Order (Hard Press Editions, 2006) og Art and Today (Phaidon Press Inc., 2008), sem var yfirlit yfir samtímalist síðustu 25 ára. Einnig var hún meðal ritsjóra bókarinnar After the Revolution: Women who Transformed Contemporary Art (Prestel Publishing, 2007), sem hlaut Susan Koppelman Award árið 2008. Árið 1992 hlaut Heartney verðlaunin College Art Association’s Frank Jewett Mather Award fyrir afrek á sviði myndlistargagnrýni. Einnig hlaut hún heiðursverðlaun Franska ríkisins, Chevalier dans l’Ordre des Arts et des Lettres, árið 2008. Heartney er fyrrum formaður AICA-USA bandaríska hluta hins alþjóðlega listfræðafélags International Art Critics Association.


 

Prenta

      DAGSKRÁ


Fimmtudag 21. mars kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Miwon Kwon

 

 

 

 

Fimmtudag 4. apríl kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Ann Reynolds

 
 

 


 

Fimmtudag 11. apríl kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Charlotte Laubard

 

 

 

 

 

 

 

       Fyrri fyrirlestrar: 2012

Fimmtudag 15. nóvember 2012
Hafnarhús - Umræðuþræðir
David Ross
VimeoFyrri hluti (0:39:40)

VimeoSeinni hluti (01:02:58)

 


Fimmtudag 27. september 2012
Hafnarhús - Umræðuþræðir
Didier Semin
VimeoDidier Semin (01:06:48)

   
Miðvikudag 21.mars 2012
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Claire Bishop: Þátttökugjörningar

 

 
Fimmtudag 26. janúar 2012
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Eleanor Heartney: Myndlist og vinnuframlag
Upptökur af fyrirlestri:
VimeoFyrri hluti   VimeoSíðari hluti

 

 




 




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00