Listasafn Reykjavíkur

 MYNDBÖND 2011 - MYNDBÖND 2010

Nei! Málþing um róttækni og andóf.

Sunnudag 11. mars kl. 14-16.

Yfirgripsmikið málþing um róttækni og andóf í samtímanum haldið í tengslum við sýningu spænska listamannsins Santiagos Sierras. Í verkum sínum minnir Sierra á mikilvægi borgaralegra réttinda í lýðræði og þar með talið rétt þegna til að andmæla lögum og kröfum yfirvalda. Nýjasta verk hans er helgað þessum málstað, en það er verkið Svarta keilan, sem komið var fyrir á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið. Verkið er minnisvarði um borgaralega óhlýðni og um leið þau sögulegu mótmæli sem haldin voru á Austurvelli fyrir liðlega þremur árum, 20. janúar 2009.

Fjölmargir fræðimenn vörpuðu ljósi á umræðuefnið, þar á meðal Jón Ólafsson heimspekingur sem velti fyrir sér helstu einkennum í orðræðunni um andóf og þeirri áhættu sem andófsmenn taka með því að hafna viðtekinni samtalslist stjórnmálanna. Helga Katrín Tryggvadóttir þróunarfræðingur greindi frá þeim pólitísku hugsjónum sem sameina anarkista og róttæka náttúruverndarsinna, en þeir hafa verið virkir hér á landi og víðar. Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur spyr hvaða leiðir séu færar til fagurfræðilegs andófs innan menningarumhverfis þar sem andófið er oðið að viðurkenndri listrænni iðju, sem staðfestir ríkjandi hugmyndir um hlutverk fagurfræðinnar, fremur en að sporna gegn þeim og Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur, leitar að samfélagslegum skýringum fyrir breyttum aðstæðum listamanna í dag og viðbrögðum listaheimsins. Egill Arnarson heimspekingur er stjórnandi málþingsins. Hann flutti jafnframt inngangsorð og stýrði umræðum að erindum loknum.

 

Dagskrá:

VimeoEgill Arnarson, heimspekingur: inngangsorð (10:14)
VimeoJón Ólafsson, heimspekingur: Orðræða andófs  (20:12)
VimeoHelga Katrín Tryggvadóttir, þróunarfræðingur: Ástin á hinu frjálsa   (24:12)
VimeoTinna Grétarsdóttir, mannfræðingur: Listin, vinnan og verkamaðurinn  (18:13)
VimeoBenedikt Hjartarson, bókmenntafræðingur: Fagurfræði neikvæðisins: Um arfleifð framúrstefnunnar og möguleika skapandi andófs á öld sjónarspilsins (24:05)
VimeoPallborðsumræður  (28:24)

  

ELEANOR HEARTNEY - MYNDLIST OG VINNUFRAMLAG

Umræðuþræðir -  Fimmtudag 26. janúar kl. 20

Bandaríski myndlistargagnrýnandinn og fræðimaðurinn Eleanor Heartney er fyrsti fyrirlesari  í verkefninu Umræðuþræðir. Hún flutti erindi um myndlist og vinnuframlag með vísun í verk listamannsins Santiago Sierra sem stendur nú yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. 

Umræðuþræðir er samstarfverkefni Listasafns Reykjavíkur, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og Listaháskóla Íslands. Lagt er uppi með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður með erlendum gestum í fyrirlestraröð ár hvert. Þátttakendur í verkefninu eru virtir sýningarstjórar, fræði- og listamenn sem eiga merkan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi.

VimeoEleanor Heartney – Myndlist og vinnuframlag / 1. hluti (55:15)
VimeoEleanor Heartney – Myndlist og vinnuframlag / 2. hluti (42:33)

 

 

 

LIST Í ALMENNINGSRÝMI - AFMÆLISMÁLÞING MYNDHÖGGVARAFÉLAGSINS

4. febrúar 2012

Myndhöggvarafélag Reykjavíkur fagnar 40 ára afmæli í ágúst árið 2012 en af því tilefni efndi félagið, í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur, til opins málþings um list í almenningsrými. Á afmælisárinu mun Myndhöggvarafélagið standa fyrir veglegri menningardagskrá, m.a. myndlistarsýningu félagsmanna, sýningu um útisýningarnar á Skólavörðuholtinu og bókaútgáfu.

Í afmælisdagskrá félagsins er sjónum beint að list í almenningsrými, en á málþinginu er fjallað um stöðu og þróun listar í almenningsrými í víðtækara samhengi en þegar rætt er um hefðbundin útilistaverk á opinberum vettvangi. List í almenningsrými getur ýmist varað tímabundið eða verið ákveðið inngrip í umhverfið. Almenningsrými bíður upp á möguleika til rannsóknar á félagslegum og/eða sögulegum raunveruleika sem listamenn hafa nýtt með ólíkum aðferðum.

Erindi fluttu þau Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur og myndlistarmennirnir Ólafur S. Gíslason og Sara Riel, sem öll hafa fengist við list í almenningsrými í ólíkum verkefnum. Opnar umræður með fyrirlesurunum fara fram í pallborði með þátttöku þeirra Brynhildar Þorgeirsdóttur, myndlistarmanns og Hrólfs Jónssonar, sviðsstjóra framkvæmda- og eignarsviðs Reykjavíkur. Stjórnandi er Dagný Guðmundsdóttir, myndlistarmaður og meðlimur í stjórn Myndhöggvarafélagsins.
 

DAGSKRÁ

VimeoÆsa Sigurjónsdóttir, listræðingur. Staður, ljós og minni. List í almannarými í reykvísku samhengi. (35:33)
VimeoÓlafur S. Gíslason, myndlistarmaður – Samfélagslegt rými.

(32:32)
VimeoSara Riel myndlistarmaður – Streetart/Strætislist: Saga, þróun og listafólkið. (35:33)

 

ÞÁTTAKENDUR Í PALLBORÐI:

Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlistarmaður

Hrólfur Jónsson sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur

Ólafur S. Gíslason, myndlistarmaður 

Sara Riel, myndlistarmaður
Æsa Sigurjónsdóttir, listræðingur.

 

MÁLÞING - SNØHETTA OG BYGGINGARLIST Í SAMTÍMANUM

Kjarvalsstaðir, Sunnudag 15. janúar kl. 15 - 17.

Málþing skipulagt í tengslum við sýninguna Snøhetta - Arkitektúr, landslagshönnun, innanhússhönnun á Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningarstjórinn Eva Madshus fjallaði um norska byggingarlist í samtímanum og Tarald Lundevall framkvæmdastjóri Snøhetta sagði frá völdum verkefnum fyrirtækisins. Umræður tóku einnig á norskum áhrifum á íslenska byggingarlist í samtímanum í pallborði, með þátttöku íslensku arkitektanna Ólafar Örvarsdóttur og Baldurs Ó. Svavarssonar.

Norsk byggingarlist í samtímanum

VimeoEva Madshus, yfirsýningarstjóri byggingar- og hönnunardeildar Listasafns Noregs. (23:48)

Snøhetta

VimeoTarald Lundevall, framkvæmdastjóri Snøhetta. (55:55)

PALLBORÐSUMRÆÐUR

Þátttakendur:
Eva Madshus, yfirsýningarstjóri byggingar- og hönnunardeildar Listasafns Noregs.
Tarald Lundevall, framkvæmdastjóri Snøhetta.
Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt og skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar.
Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt FAÍ og FSSA hjá Úti og inni arkitektar.
 

Prenta




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00