|

Jóhannes
Sveinsson Kjarval fæddist í Efriey í
Skaftafellssýslu árið 1885. Fjögurra
ára var hann sendur í fóstur til
frændfólks síns í Geitavík
í Borgarfirði eystra og ólst þar
upp.
Þegar
Kjarval var 17 ára fluttist hann til Reykjavíkur.
Hann hafði lengi verið áhugasamur um
myndlist og einsetti sér að mennta sig og
taka framförum á listabrautinni. Vann hann
fyrir sér með sjómennsku og ýmsum
störfum í landi en teiknaði og málaði
þegar tími vannst til.
Kjarval var ljóst að til að ná
árangri í myndlist yrði hann að
fara utan. Síðla árs 1911 sigldi hann
með togara til London með það að
markmiði að komast inní Konunglega listaháskólann.
Ekki fékk Kjarval skólavist en hann notaði
tímann í London til að skoða söfn
og mála. Næsta vor hélt hann til
Kaupmannahafnar. Að loknu árs teikninámi
við tækniskóla fékk hann inngöngu
í Konunglega listaháskólann. Þar
stundaði hann nám næstu árin
og brautskráðist í árslok 1917.
Á
námsárunum kom Kjarval oftast heim á
sumrin og málaði. Að loknu náminu
í Kaupmannahöfn ferðaðist hann um
Norðurlönd og dvaldist einnig um hríð
á Ítalíu.
|