|

Lífið er list, listin er lifið er yfirskrift námsefnis ætluðu 6. bekk í tengslum við heimsókn á Kjarvalsstaði. Efnið er aðgengilegt á vefsíðu safnsins og nýtist vel í tengslum við heimsókn í safnið og verkefni sem nemendur vinna þar. Kennarar og nemendur geta nýtt efnið bæði á undan og eftir heimsókninni.
Þegar nemendur leysa verkefnið
á sýningunni gefst kostur á að
velta upp spurningum um tíðaranda á
Íslandi á fyrrihluta aldarinnar, vaknandi
þjóðernisvitund og sjálfstæðisbaráttuna.
Tekið
er á móti skólahópum frá
mánudögum til föstudaga á milli
kl. 8 og 15. Heimsóknin tekur eina til tvær
kennslustundir. Tekið er á móti einum
bekk í einu. Leiðsögn um sýningarnar
er skólunum að kostnaðarlausu.
Munið
að panta með góðum fyrirvara.
Til
að fá nánari upplýsingar og
bóka hópa: Sími 590 1200 (biðjið
um fræðsludeild), netfang: fraedsludeild@reykjavik.is,
fax 590 1201.
|