Hugrækt í hádeginu í Ásmund­arsafni

, til

Hugrækt í hádeginu í Ásmundarsafni

Hugrækt í hádeginu í Ásmundarsafni

Ásmundarsafn

, til

Við bjóðum gestum upp á nærandi og uppbyggjandi stund í fallegu umhverfi Ásmundarsafns við Sigtún.

Við bjóðum gestum upp á nærandi og uppbyggjandi stund í fallegu umhverfi Ásmundarsafns við Sigtún.

Upplagt að taka sér hádegishlé og hugleiða á markvissan hátt.

Listhugleiðsla í Ásmundarsafni verður fyrsta fimmtudag í mánuði en þar gefst tækifæri til að skynja, upplifa og njóta listar á hæglátan og innihaldríkan hátt.

Það er Halla Margrét Jóhannesdóttir verkefnastjóri miðlunar sem hefur umsjón með listhugleiðslunni. Halla Margrét er leikari og rithöfundur og hefur jafnframt yogakennararéttindi.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.