Las Vegan │ Lista­hátíð í Reykja­vík, 2. sýning

til

Las Vegan │ Listahátíð í Reykjavík, 2. sýning

Las Vegan │ Listahátíð í Reykjavík, 2. sýning

Hafnarhús

til

Marglaga fjölskyldusaga í porti Hafnarhússins.

  1. JÚNÍ KL. 20:00 – 15. JÚNÍ KL. 14:00 – 16. JÚNÍ KL. 14:00

Þegar barnið sér á TikTok að vísindamenn telji að heimurinn mun farast árið 2036 bregður konan á það ráð að flytja fjölskylduna til Las Vegas til að láta drauma barnsins um að læra látbragðsleik rætast áður en það er orðið um seinan. Í Las Vegas dragast þau smátt og smátt inn í heim skemmtanaiðnaðarins þegar konan fer að æfa loftfimleika og maðurinn sogast inn í sönglistina ...

Las Vegan fjallar um fjölskyldu í rofi — hjón á krossgötum með barn í myrkri tilvistarkreppu og einmana ömmu í herför gegn óréttlæti heimsins.

Í þessu marglaga sviðsverki myndlistarkonunnar og leikmyndarhöfundarins Ilmar Stefánsdóttur tvinnast myndlist, leiklist, tónlist og sirkuslistir saman á magnaðan hátt. Leikið er á öll skynfæri áhorfenda og túlkun leikaranna er bæði mynd­- og hljóðræn.

Höfundur sjónleiks & uppfærslu: Ilmur Stefánsdóttir

Listrænn meðstjórnandi: Valur Freyr Einarsson

Flytjendur: Ebba Katrín Finnsdóttir, Eggert Þorleifsson, Guðrún Gísladóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Davíð Þór Jónsson, Justyna Micota, Jón Sigurður Gunnarsson

Ljós & tækni: Blair Alexander

Hljóðvinnsla: Aron Þór Arnarsson

Höfundur myndvinnslu: Elmar Þórarinsson

Sirkusþjálfun: Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Meyvant Kvaran

Hár og förðun: Tinna Ingimarsdóttir

Aðstoð við uppsetningu: Auður Ösp Guðmundsdóttir

Miðaverð: 4.500 kr.