Leið­sögn lista­manna: Hendi næst

, til

Leiðsögn listamanna: Hendi næst

Leiðsögn listamanna: Hendi næst

Ásmundarsafn

, til

Sunnudaginn 5. maí kl. 14.00 verða listamennirnir Klemens Hannigan og Carissa Baktay með leiðsögn á ensku um sýninguna Hendi næst í Ásmundarsafni.

Á þessari samsýningu mætast verk Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og samtímalistamanna sem skapa myndverk með eigin höndum og nýta rótgrónar handverkshefðir við listsköpun sína. Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga samtímalistamanna sem og áhorfenda á handverki en jafnframt verður horft til baka til þess að gera grein fyrir því hvernig arfleifð Ásmundar Sveinssonar endurómar í framúrstefnulegri tjáningu samtímans.

ATH! Leiðsögnin er á ensku.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.