Verslun

CLUB SCARF

 

Eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur, listamann.

CLUB SCARF er vélrjónaður trefill gerður úr extra fínni merínóull í Hollandi. Hann er hannaður af listamanninum Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur sem á verk á sýningunni D-vítamín í Hafnarhúsi.

Trefillinn er hugsaður sem sameiningartákn. Hvort sem þú ert í liðinu sem reynir sitt besta við að halda loftslagsbreytingum í skefjum, liðinu sem stuðlar að friði og náungakærleika eða liðinu sem hjálpar þér við að stíga upp úr sófanum á erfiðum mánudegi. Þannig nýtist hálfleikurinn sem tími ákvarðanatöku jákvæðra breytinga. 

CLUB SCARF kemur í þremur ólíkum litasamsetningum, í upplagi af 15 í hverjum lit og er til sölu fyrir 12.500 krónur í safnbúð Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi.

Þér gæti einnig líkað við