Leið­sögn: Aðgát

til

Leiðsögn: Aðgát

Leiðsögn: Aðgát

Kjarvalsstaðir

til

Agnes Ársælsdóttir aðstoðarmaður sýningarstjóra verður með leiðsögn um sýningu Borghildar Óskarsdóttur, Aðgát, á Fimmtudeginum langa í apríl og maí.

Borghildur Óskarsdóttir (f. 1942) á merkan listferil að baki sem spannar um sex áratugi. Hún er enn að því listin er samofin lífi hennar og starfi.

Á sýningunni er varpað ljósi á frjóan og marþættan ferill hennar, listnálgun og verk, en samhliða sýningunni er gefin út vönduð bók þar sem verk hennar eru sett í samhengi við listir og fræði, sögu og samtíma.

Agnes Ársælsdóttir myndlistarmaður og nemi í Sýningargerð, miðlun og sýningarstjórnun sinnti rannsóknum fyrir sýninguna í starfsnámi frá Háskóla Íslands undir handleiðslu Aðalheiðar L. Guðmundsdóttur sýningarstjóra.

Fimmtudagurinn langi er síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar og fjöldi safna og sýningastaða bjóða upp á lengdan opnunartíma.