Leikum að list! Kera­miksmiðja með íslenskum leir

til

Leikum að list! Keramiksmiðja með íslenskum leir

Leikum að list! Keramiksmiðja með íslenskum leir

Kjarvalsstaðir

til

Í listasmiðjunni fá gestir að kynnast undrum íslenska leirsins og fá innblástur úr verkum Borghildar Óskarsdóttur á sýningunni Aðgát sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum.

Ath. Leikum að list viðburðurinn sem átti að vera í maí færist til 2. júní.

Leirinn kemur beint úr íslenskri náttúru og gefst þátttakendum hér einstakt tækifæri á að mynda nýjar tengingar við land og sögu í gegnum eigin listsköpun.

Smiðjan hentar börnum öllum aldri og umsjónarmaður er Ada Stanczak keramikhönnuður og kennari í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Ath! Takmarkað pláss og skráning nauðsynleg.

Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður.

Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.